Læknaneminn - 01.10.1995, Blaðsíða 11
Dregur úr
þrýstingi
ACE-hemjari gegn
of háum blóðþrýstingi
og hjartabilun
Framleióandi: Lyfjaverslun íslands hf., Borgartúni 7, 105 Reykjavík.
Nafn sérlyfs: Reníl. TÖFLUR; C 02 E A 02.
Hver tafla inniheldur: Enalaprilum INN, maleat, 5 mg eöa 20 mg. Eiginleikar: Lyfið
hamlar hvata, er breytir angiotensin I í anigotensin II, sem er kröftugasta æöasamdráttarefni
líkamans. Lyfiö er forlyf. U.þ.b. 60% frásogast, umbrýst í lifur í enalaprflat, sem er hiö virka
efni. Áhrif lyfsins ná hámarki eftir 4-6 klst. og geta haldist í 24 klst. Helmingunartími er um 11
klst., en er mun lengri, ef nýrnastarfsemi er skert. Lyfiö útskilst í þvagi.
Ábendingar:
1. Hár blóðþrýstingur.
2. Hjartabilun.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir lyfinu. Meðganga og brjóstagjöf. Lyfiö má alls ekki nota á
meögöngu. Lyf af þessum flokki (ACE-hemjarar) geta valdiö fósturskemmdum á öllum
fósturstigum. Varúö: Gæta skal varúðar við gjöf lyfsins hjá sjúklingum meö skerta nýrna-
og lifrarstarfsemi. Lyfið getur valdið of mikilli blóðþrýstingslækkun, ef sjúklingar hafa
misst salt og vökva vegna undanfarandi meðferðar með þvagræsilyfjum.
Aukaverkanir: Algengar: Ofnæmi, hósti, svimi, höfuðverkur. Sjaldgæfari:
Þreyta, slen, lágur blóðþrýstingur og yfirlið. Ógleði, niðurgangur. Húðútþot,
ofnæmisbjúgur. Vöðvakrampar. Brengluð nýrnastarfsemi. Kreatínin,
urea, lifrarensím og bilirúbín geta hækkað, en komast í fyrra horf ef
lyfjagjöf er hætt. Milliverkanir: Blóðþrýstingslækkandi verkun
lyfsins eykst, ef hýdróklórtíazíö er gefið samtímis. Blóðkalíum
getur hækkað, ef lyfið er gefiö samtímis lyfjum, sem draga úr
kalíumútskilnaði. Ofskömmtun: Gefa saltvatnslausn eða
angiotensin II Skammtastærðir handa fullorönum:
Viö hækkaöan blóöþrýsting: Venjulegur upphafs-
skammtur er 10-20 mg einu sinni á dag. Ekki er mælt
með hærri dagsskammti en 40 mg. Viö hjartabilun:
Upphafsskammtur er 2,5 mg á dag, sem auka má
smám saman á 2-4 vikum. Venjulegur
viðhaldsskammtur er 20 mg á dag, gefinn í
einum eöa tveimur skömmtum.
Skammtastæróir handa börnum: Lyfið
er ekki ætlað börnum. Útlit: 5 mg töflur;
hvítar, kringlóttar, kúptar töflur með
deilistriki, 8,7 mm í þvermál.
20 mg töflur; hvítar, kringlóttar, kúptar
töflur með deilistriki, 9,5 mm í þvermál.
Pakkningar: Töflur 5 mg: 30
stk./100 stk. Töflur 20 mg: 30
stk./100 stk.