Læknaneminn - 01.10.1995, Blaðsíða 99
100 ÁRUM EFTIR PASTEUR
miltisbrand í kindum. Þessi sýning sannfærði
marga þá sem ekki trúðu á kenningar hans. Síðar
fóru fram umfangsmilclar bólusetningar á dýrum,
en Pasteur vonaðist til að þessa tælcni mætti líka
nota til að sigrast á smitsjúkdómum í mönnum.
A árinu 1882 hófst hann handa ásamt samstarfs-
mönnum sínum, við rannsóknir á hundaæði. Þeir
komust að því að smitefnið var að finna í heila
sýktra dýra, og með því að þurrka taugavefinn
tókst þeim að framleiða bóluefni. Þann 6. júlí
1885 var komið til hans með 9 ára dreng, Joseph
Meister, sem hafði verið bitinn 14 sinnum af
hundi með hundaæði. Móðir drengsins grátbað
Pasteur um að bólusetja drenginn, með bóluefni
sem fram að því hafði aðeins verið notað í
dýrum. Pasteur tók þá afdrifaríku ákvörðun að
bólusetja drenginn. Drengurinn féklc ekki hunda-
æði. Nokkrum mánuðum síðar voru fjórir
Bandarískir drengir bitnir af óðum hundi.
Fréttirnar höfðu borist til Bandaríkjanna og var
ákveðið að sigla með drengina til Frakklands.
Þeir voru bólusettir og fóru heilbrigðir aftur heim
til sín. I framhaldi af þessum sigrum fór af stað
söfnun fyrir rannsóknastofnun handa Pasteur, en
þar átti meðal annars að framleiða bóluefni gegn
hundaæði. Stofnunin var svo vígð af forseta
Frakklands, Sadi Carnot, 4. nóvember 1888.
Strax í upphafi fékk Pasteur til sín vísindamenn
úr ýmsum fræðigreinum, en stofnunin hefur
síðan verið í fararbroddi í rannsóknum í sýkla-
og ónæmisfræði( 1-3). Nokkrar af mikilvægari
uppgötvunum sem gerðar hafa verið á Pasteur
stofnuninni má sjá í töflu I.
Með uppgötvunum Louise Pasteur, Robert
TAFLA I.
MIKILVÆGAR UPPGÖTVANIR OG RANNSÓKNIR
SEM GERÐAR HAFA VERIÐ Á PASTEUR STOFNUNINNI (INSTITUT PASTEUR).
Unniðúr afmælishefti gefnu út af stofnuninni 1987 (3)
Mikilvægar uppgötvanir/rannsóknir Stjórnun rannsókna Ár
Upphaf sermismeðferðar (serum therapy), með notlcun á hestasermi í meðferð á barnaveiki. Roux og Yersin 1888
Rannsóknir á átfrumum og bólgu Metchnikoff* 1889-1900
Greining á bakteríu svarta dauða (plague bacillus) Yersin 1894
Verkunarmáti komplimenta og sýnt fram á vessabundna ónæmiskerfið. Bordet* 1896-1899
Hlutverk flóarinnar í smitleið svarta dauða Simond 1898
Hlutverk lúsarinnar í smitleið lúsataugaveiki (typhus) Nicolle* 1909
Orsölc mænusóttar er örvera sem fer í gegnum síur, þ.e. veira. Levaditi og Landsteiner 1910
Uppgötvun bakteríuveira (bacteriophages) d’Hérelle 1914
Þróun berklabóluefnisins (BCG) Calmette og Guérin 1921
Uppgötvun sýkladrepandi áhrifa súlfónamíða Jacques, Thérése Tréfouel,
Nitti, Bovet* 1936
Þróun á bóluefni gegn mænusótt Lépine
Rannsóknir á stjórnun hvata og próteinmyndun Monod*, Jacob* 1960
Uppgötvun alnæmisveirunnar, HIV 1 Montagnier 1983
Uppgötvun alnæmisveirunnar, HIV 2 Montagnier 1986
* Nóbelsverðlaunahafar
LÆKNANEMINN 2.tbl. 1995 48. árg.
89