Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1995, Page 57

Læknaneminn - 01.10.1995, Page 57
BÓLGUHNÚÐAR Langvinnar eitlabólgur á hálsi og fistilmynd- un eru vel þekktar í tengslum við berlcla og heitir scrofula. Eru þær algengastar í eitlum á hálsi. Algeng orsök scrofula í börnum eru M. scro- fiulaceum og M. intracellulare. Bólguhnúðar í lifur sjást í einungis fáum þeirra sem hafa lungnaberkla, en í nær öllum tilfellum við útbreidda (miliary) berkla en í 3/4 einstaklinga með berkla utan lungna. Mjög misjafnt er hversu lifrarpróf brenglast mikið en venjulegast er einungis um væga hækkun að ræða á alkalískum fosfatasa (ALP), aspartate transamínasa (ASAT) og gammaglutamyla transpeptíðasa (GGT). Það að sjúklingur hafi verið útsettur fyrir hinni óvenjulegu (atypisku) berklabakteríu M. szulgai leiðir hugann að því hvort hún er hugsanlegur meinvaldur. Þessi baktería er mun sjaldgæfari en M. tuberculosis, þó hefur þessi baktería ræktast nokkrum sinnum hér á landi. Sjúkdómsgangur þeirra er sýkjast af M. szulgai er svipaður þeim sem gerist með M. tuberculosis, þ.e. flestir hafa lungnasjúkdóm. Þekktir eru bólguhnúðar í lifur við notkun berkla bóluefnisins bacille Calmette-Guérin (BCG). Þó holdsveiki sé ekki á þeim lista sem birtist í töflu 3, er þess virði að hugsa um hana. Síðasti sjúklingurinn setn hafði holdsveiki á íslandi lést árið 1979 en hafði greinst með sýkinguna á yngri árum og því líklegast fengið endurvakningu á holdsveiki skömrnu fyrir andlátið. A hverju ári flytjast til landsins einstaklingar frá landlægum svæðum svo sem Indlandi eða Mexíkó. Einnig er algengt að íslendingar ferðist um þessi svæði. Orsakavaldurinn er Mycobacterium leprae og smitast með snertismiti. Meðgöngutími er 3-5 ár og eru til tvö form holdsveikinnar; „lepro-matous leprosy“ sem veldur útbreiddari sjúkdóm en hitt formið „tuberculous leprosy". Sýkingin verður helst á yfirborði líkamans, í húð og taugum er liggja grunnt, einkennandi staðir eru n.peronealis eða n. ulnaris og framhluti augans. Fyrstu ein- kennin eru litlausir húðblettir og þreifanlega stækkaðar taugar. Þessi ákoma á taugarnar veldur minnkuðu skyni og vöðvarýrnun, sérstaklega í höndum, sem síðan skaddast af völdum áverka og síðkominna sýkinga með tilheyrandi fingur-, útlimamissi eða blindu, ef réttrar meðferðar verður ekki komið við. Sjaldgæfari orsök bólguhnúða í lifur af völdum baktería eru Salmonellosis sem algeng- ast er að komi fram senr bráður niðurgangur, blóðsýking, ígerð, heilahinmubólga, bein- eða liðsýking, hjartaþelsbólga eða sem einkennalaus sýking. Smitast fólk við að borða sýktan mat svo sem egg eða mjólk. Listeria monocytogenes er gram jákvæð stafbaktería og orsakar listeriósis. Listeriósis er sjaldgæf sýking. Nýgengi á íslandi er 0.83/100.000/ári. Hún er algengust í nýburum og eldri einstaklingum og birtist oftast sem heilahimnubólga (3/4 greindra tilfella), en einnig sem hjartaþelsbólga, augn-, húð- og lífhimnu- sýking ásamt ígerðar myndun. Bólguhnúðar greinast einna helst í sjúkdómsformi nýbura sem sýkjast á meðgöngu, „granulomatosis infanti- septica“. Óvíst er hvort kattarklórssjúkdómur hafi greinst á Islandi. Orsakavaldur er stafbakterían, Bartonella henselae og eru sjúkdómseinkenni sýking í húð á kattarklórsstað, svæðisbundnar eitlastækkanir og mismunandi almenn einkenni svo sem hiti og slappleiki. Yfir 90% smitaðra eru undir 18 ára aldri. Sveppir geta valdið bólguhnúðum í lifur, en vegna veðurfars og landfræðilegra skilyrða eru ýmsar sveppasýkingar ekki eins algengar á Islandi og í heitari löndum. Cryptócoccósis er af völdum Cryptococcus neofiormans, sem talinn er smitast með öndunar- færasmiti. Hann getur valdið sýkingu í lungum sem takmarkar sig venjulegast sjálf og eru sjúklingar oftast einkennalausir en einnig getur sveppurinn dreifst víðar um líkamann. Algengast er að sjúklingar fái heila- eða heilahimnubólgu sem við þekkjum best í tengslum við alnæmis- sjúklinga en um 3/4 allra sem sýkjast af LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg. 47
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.