Úrval - 01.07.1962, Blaðsíða 40
48
ÚHVAL
bolta, ætli hann gefi mér hann
þá?“ Barnið biður einlæglega
um eitt og annað, smátt og stórt,
en rekur sig á þá undarlegu stað-
reynd, að guð, sem getur allt,
daufheyrist oft við bænunum.
Við getum svarað hinu von-
svikna barni því til, að guð vilji
leysa úr öllu fyrir það, eins og
pabbi, en ekki sé ævinlega hægt
að koma þvi við. Setjum svo,
að barnið hafi beðið um að láta
rigninguna hætta eða að gefa sér
þrihjól. Þá getum við minnt
barnið á, að guð skapaði bæði
rigninguna og sólskinið og gef-
ur börnunum foreldra, sem
kaupa þrihjót, ef þau hafa efni
á því. Segðu barninu, að guð
ætlast til, alveg eins og pabbi,
að ekki sé verið að biðja um
alla skapaða hluti —- að lítill
drengur eigi ekki að biðja um
þurrt veður einhvern vissan dag,
því bændunum komi kannski
vel, að einmitt rigni þennan
dag.
Önnur tegund af svari er að
segja, að guð ætlist til, að við
biðjum um hjálp til að verða
sterk og góð og að geta leyst
sjálf sem fiest vandamál; að við
eigum ekki að biðja guð nm að
hlifa okkur við öllum óþægind-
um.
Börnin eru aldrei of ung til
að skilja, að við eigum að gera
meira i bænum okkar en það
eitt að biðja guð um eitt og
annað, heldur lika að tala við
guð eins og við tölum við fólk
og reyna að vera þess vísari, til
hvers hann ætlast af okkur.
Segðu ekki bnrninn þínu, a,ð
ekki skipti máli, hverju það
trúir, svo fremi það trúi á eitt-
hvað.
Orðið trúarjátning (creéd)
fer í taugarnar á mörgum for-
eldrum. Og við erum svo um-
burðarlynd eða að minnsta kosti
áköf i að vera það, að við viljum
ekki kenna börnunum okkar
neitt, sem gæti orðið til að stía
þeim frá öðrum börnum. Oft
gerum við ekki meira úr guði
en að hann sé eitthvert óljóst
afl, fjarlægt og utan við daglega
lifið. „Það liggja margar leiðir
til guðs,“ segjum við með guð-
ræknissvip. Það er reyndar rétt.
En við gleymum því, að ein-
hverja leiðina verðum við að
velja.
Það er heldur ekki nægilegt
að lita á trúna sem eitthvað, sem
börnin geti hallað sér að, þegar
þau verða eldri. Lítil telpa eða
drengur þarf þess arna með
undir eins. Trúin þarf að gróp-
ast inn i hugann frá barnsaldri.
Trúarlífið höfðar engu að síður
til hjartans og tilfinninganna,
en skynseminnar, og guðshug-
myndin á að vera jafn sam-