Úrval - 01.06.1966, Blaðsíða 16
Reynið hið 24 alda gamla kerfi,
sem Cicero notaði, og
Bætiö
4
4
€
eyndardómurinn við að
m auka eða bæta minni
LÖ{. sitt er að tengja það,
q sem þú vilt muna, við
eitthvað sem þú ert viss
um að geta munað.
Þetta er hægt að gera á marga
vegu og ein auðveldasta leiðin, er
að nota samstafaða nafnstyttingu.
Slíkar skammstafanir sem lesnar
eru sem eitt orð, voru mjög fátíðar,
en eru nú mjög algengar.
Þannig höfum við nú í dag stytt
heiti, sem öllum eru skiljanleg, eins
og til dæmis, UN fyrir United Nat-
ions, Interpol fyrir Internation Pol-
ice Commission, Core fyrir Comm-
itte on Racial Equality, Aid fyrir
Agency for International Develop-
ment og svo framvegis.
Þú getur búið þér til þitt eigið
samstöfukerfi ef þér sýnist svo, til
að bæta minni þitt eða gera þér
auðveldara að muna þetta eða hitt.
Við skulum nefna sem dæmi, að
þú ætlir að muna nöfnin á Vötnun-
um miklu og notir þá til dæmis orð-
ið HOMES. Þetta orð er auðvelt að
muna ekki sízt fyrir það, að hin
miklu vötn eru nú umkringd manna-
byggð. Orðið er myndað úr upp-
hafsstöfum eftirtalinna vatna: Hur-
on, Ontario, Michigan, Erie, Super-
ior.
Tökum annað glöggt dæmi um
notkun orða til að muna fjölda ann-
arra atriða. Enska orðið A COW
-kýr) gæti minnt okkur á öll rík-
in á vesturströnd Bandaríkjanna.
Upphafsstafir þeirra eru A (Alaska),
C (California), O (Oregon), W
(Washington).
Herbergjakerfið er það elzta af
þessum hjálparkerfum til aukins
minnis.
Það er hægt að rekja notkun þess
allar götur aftur til gríska skálds-
ins Simonides, sem var uppi 470 ár-
um fyrir Kristsburð.
Það var eitt sinn skömmu eftir að
hann gekk á brott úr kvöldveizlu
að húsþakið féll ofan á alla þá sem
eftir voru. Hinir látnu voru herfi-
14
Science Digest