Úrval - 01.06.1966, Blaðsíða 54
52
ÚRVAL
ur. En um leið hef ég lagt áherzlu
á það, að þarna skapist tækifæri
fyrir hinn verðandi föður til þess
að auka líkamshreysti sína með því
að gæta eigin mataræðis konu sinn-
ar. Hann getur hjálpað henni með
því að borða í hófi í nærveru henn-
ar og standast þá freistingu að koma
með sælgæti eða annað góðgæti og
troða í sig í návist hennar ýmsum
þeim mat, sem henni er bannað að
neyta“.
Viðbrögð karlmannsins, þegar
hann fréttir, að hann sé verðandi
faðir, kunna að benda til þess, hvort
hann verði góður eiginmaður og
faðir. Svo álítur dr. Schaeffer að
minnsta kosti.
Ef hann finnur ekki aðeins til
gleði sjálfs sín vegna, heldur einn-
ig fyrir hönd konu sinnar, þegar
hann fréttir, að hjónaband þeirra
muni bera ávöxt, já, einnig fyrir
hönd barnsins sjálfs. þá mun hann
að öllum líkindum verða góður eig-
inmaður og faðir. En byrji hann á
hinn bóginn að miklast af hinni
miklu sjálfsfórn sinni, kann svo að
fara, að hann valdi hvorugu þessu
hlutverki sínu.
„Velgengni hans á þessu sviði mun
að miklu leyti undir því komin,
hvers konar persóna hann er, en
slíkt ákvarðaðist fyrir löngu, í frum-
bernsku hans, bernsku og á æsku-
árunum“, bætir læknirinn við. „Það
er að öllum líkindum of seint að
ætla að breyta persónuleika eigin-
mannsins, svo að nokkru nemi, en
þarna skapast gott tækifæri fyrir
hann til þess að vega og meta kosti
sína og galla“.
Dr. Schaeffer styður álit starfs-
fólks flestra sjúkrahúsa, hvað snert-
ir hina umdeildu spurningu, hvort
faðirinn eigi að fá að vera viðstadd-
ur í fæðingarstofunni, meðan á fæð-
ingu stendur. Hann bannar slíkt.
Starfsfólk það, sem inn í fæðing-
arstofuna kemur, verður að vera
klætt á sérstakan hátt. Auðvitað
mundi það ekki skapa nein vand-
kvæði, þótt sjá þyrfti fyrir slíkum
búningi handa einum verðandi föð-
ur, en slíkt væri mjög dýrt og tíma-
frekt fyrir stór sjúkrahús, þar sem
mikið er um fæðingar.
„Þótt ungbarnið gráti venjulega,
strax eftir að það fæðist, þá þarf
oft að viðhafa ýmislegar athafnir
til þess að koma önduninni af stað.
Og hinum verðandi feðrum, sem
búa ekki yfir neinni sérþekkingu á
þessu sviði, kann að virðast slíkar
aðfarir ógnvekjandi og miklu harka-
legri en þær eru í raun og veru“,
segir læknirinn enn fremur. „Slíkt
gæti haft mjög sterk áhrif á föð-
urinn, sem kynnu að vara um tölu-
verðan tíma“.
’ljartaslög fóstursins.
Tæki, sem er á stærð við vasa-
Ijós, getur greint fyrsta hjartslátt
10 vikna gamals fósturs, þegar hið
ófædda barn er um 2 þumlungar á
lengd. Með þessu tæki er hægt að
greina hjartslátt fóstursins mun fyrr
en með venjulegu hlustunartæki.
Þegar tækið er borið að húðinni,
varpar það frá sér hátíðni hljóð-
bylgjum. Tíðni þeirra breytist, þeg-
ar þær endurvarpast frá efnisögn-
um á hreyfingu í blóðrás fóstursins.
Hátíðnihljóðbylgjunum er hægt
að breyta í heyranlegt hljóð, svo að