Úrval - 01.07.1970, Qupperneq 77
GJÖFIN SEM VAR ENDURGOLDIN
75
mér fannst samt sem ég hefði misst
tengsl við eitthvað, sem var mér
mjög þýðingarmikið. Fyrsta hugsun
mín var þessi: „Ég verð að finna
einhvern annan, sem þarfnast
hjálpar“.“ „Ég gladdist yfir því, að
okkur hafði tekizt það, sem við
ætluðum okkur að gera,“ sagði ein
gagnfræðaskólastúlkan. „En samt
saknaði ég þess að hafa nú ekki
lengur tækifæri til þess að heim-
sækja Morganfjölskylduna. Mánu-
dagurinn hætti nú að vera mánu-
dagur.“
Tom átti samt enn eítir margt og
mikið til þess að ná takmarkinu.
Tal hans var óskýrt, og hann skrif-
ar mjög hægt og með erfiðismun-
um. En hann sækir nú alla tíma í
skólanum og sýnir stöðugar og
vaxandi framfarir. Honum finnst
nú sem sér sé ekkert ómögulegt.
Tom vildi sýna þeim gagnfræða-
skólanemendum þakklætisvott, sem
höfðu hjálpað honum til þess að
æfa 6600—7000 sinnum, án þess að
nokkur tími félli úr. Og honum
veittist tækifæri til þess, þegar
hann talaði fyrir skömmu á fundi í
Briarcliff-gagnfræðaskólanum. —
Hann leit yfir allan hópinn og
brosti. Svo sagði hann hægt og
skýrt: „Mig langar til þess að
þakka ykkur öllum.“ Nemendurn-
ir risu á fætur allir sem einn og
klöppuðu fyrir honum af öllum lífs
og sálar kröftum í góða stund.
Á aðalfundi bandariska demókrataflokiksins árið 1924 varð að greiða
atkvæði 104 sinnum, áður en John W. Davis var endanlega valinn sem
forsetaefni flokksins. Þess vegna urðu fulltrúarnir að dvelja lengur að
heiman en þeir höfðu gert ráð fyrir.
Einn þeirra minnist þess, að formaður fulltrúanefnidarinnar frá
Massachusettsfylki kallaði eitt sinn fulltrúa fina saman og sagði við þá:
„Herrar mínir, við verðum að velja. Annaðhvort veljum við ódýrara
gistihús eða frjálslyndara forsetaefni."
John J. McAleer.
í fyrirkomulagi leigubilareksturs og aksturstaxta birtast oft ýmis
einkenni hverrar þjóðarsálar. 1 Irlandi eru leigubílstjórarnir t d. ósköp
hagsýnir og virðulegir miðstéttarborgarar.
Leigubilstjóri einn í Dublin, sem þekkti mig að nafni, spurði mig eitt
sinn, hvort ég hefði sótt messu þann dag, en það var um kaþólskan
kirkjuhelgidag að ræða. Ég kvað nei við, og hann sagði, að við hefðum
nægan tíma til þess að hlýða messu, áður en flugvélin mín færi. Við
stönzuðum því við kirkju eina á leiðinni til flugvallarins og hlýddum á
messu saman. En gjaldmælirinn hans var alltaf í gangi á meðan.
írar eru í senn hagsýnt og andlega þenkjandi fólk.
Patrick O’Donovan.