Úrval - 01.07.1970, Page 93
ÞANNIG ERU NJÓSNARAR RÚSSA ÞJÁLFAÐIR
91
á breidd. í því var arinn, en því
fylgdi ekkert eldhús né bað. Ná-
lægt húsinu voru sorpgryfjur borg-
arinnar, og þaðan lagði daunillan
þef. Einnig barst þaðan herskari
af risavöxnum rottum.
Um haustið ákváðu þau Tuomi
og Nína, eldri dóttir ekkjunnar,
að ganga í hjónaband. Þar var
fremur um vináttu og hagkvæmni
að ræða en ást. Þau voru gefin sam-
an í hjónaband í matarhléi og eyddu
brúðkaupsnóttinni í sama herbergi
og þau höfðu áður hafizt við í, þar
sem móðir Nínu og systir sváfu í
nokkurra feta fjarlægð frá þeim.
Nína vann sem afgreiðslustúlka í
fataverzlun gegn lágum launum, og
eftir skólatíma hjó Tuomi við í eld-
inn og annaðist brauðflutninga fyr-
ir Ríkistehús númer 3 til þess að
drýgja tekjur þeirra. Hann fékk
jafnvirði 50 dollara á mánuði fyrir
starf þetta og þar að auki máltíðir,
þannig að hann gat því gefið ekkj-
unni og dætrunum mestallan mat-
arskammt sinn. En það varð samt
oft matarskortur hjá þeim. Og hann
leiddi svo til þess, að Tuomi urðu
á önnur þeirra tveggja mistaka,
sem áttu eftir að umbylta gervöllu
lífi hans.
Seint í desembermánuði árið 1947
var Tuomi að draga sleða um snævi
baktar göturnar í áttina til tehúss-
ins. Sleðinn var hlaðinn brauði.
Hann tók eftir því, að brauðkass-
inn var þyneri en venjulega, og
bví opnaði hann hann. Að vitum
hans barst ilmur af nýbökuðum
frönskum brauðsnúðum. Hann taldi
bakkana. og svo taldi hann þá aft-
ur. Það lék enginn vafi á því, að
þeir í brauðgerðarhúsinu höfðu af-
hent honum aukabakka með 100
ljúffengum brauðsnúðum á. Ef hann
skilaði þeim ekki og ef upp um
hann kæmist, gæti hann hlotið 10
ára fangelsisdóm fyrir að stela rík-
iseignum. En hver gæti komizt að
því?
Hann hnipraði sig saman, er hann
teymdi sleðann framhjá KGB-
skrifstofu hverfisins.* Hús það gekk
undir nafninu „Gráa byggingin"
vegna skuggalegs litar síns og
þeirrar óhugnanlegu starfsemi, er
þar var rekin. Hann fann skjálfta
fara um sig sem snöggvast, en svo
flýtti hann sér heim. „Guð minn
góður!“ hrópaði Nína, er hann kom
æðandi inn í herbergið með brauð-
snúðana í fanginu. „Hvar fékkstu
þá?“
„Láttu þig það engu skipta,“
svaraði Tuomi skipandi röddu.
„Kauptu svolítið vodka og smjör,
meðan ég fer með brauðsendinguna
til tehússins. Við höldum veizlu í
kvöld!“
Tuomi urðu á hin mistökin þenn-
an sama vetur. Vegna eldiviðar-
skorts voru allar líkur á því, að
loka yrði tehúsinu. Því gerði fram-
kvæmdastjórinn og næturvörður-
inn áætlun um að ræna nægilegum
eldiviði úr eldiviðargeymslu ríkis-
ins til þess, að hann nægði þeim
veturinn á enda. Framkvæmda-
* Árið 1947 gekk KGB, sovézka
leyni- og njósnaþjónustan, undir
heitinu MGB, þ. e. Ríkisöryggis-
ráðuneytið. En starfsemi þessi hef-
ur oft skipt um nafn, síðan hún
hófst.