Úrval - 01.05.1971, Síða 51

Úrval - 01.05.1971, Síða 51
LÍÐSFORINGINN... 49 og var í gipsi. Það var dæld í aðra hlið höfuðsins, því að þar vantaði bein. Og þar gat að líta tvær bor- holur, sem herskurðlæknar í Suð- ur-Vietnam höfðu borað í tilrauna- skyni. Hann hafði verið 145 pund á þyngd, en var nú orðinn skinhor- aður, enda var þyngd hans komin niður í 80 pund. Kathy fannst það óhugsandi, að þessi brjóstumkennanlega vera væri eiginmaðurinn hennar. Fyrir aðeins 16 vikum hafði hann verið við beztu heilsu og áfjáður í að komast til Vietnam. Hann var son- ur yfirliðþjálfa í fastahernum og hafði boðið sig fram til herþjón- ustu, eftir að hafa stundað nám í eitt ár við Oregonháskólann. Hon- um hafði sótzt námið mjög vel, og var hann framarlega í félagslífi stúdenta. ,,Ég get ekki haldið áfram í skól- anum, meðan menn týna lífinu þarna i Vietnam,“ hafði hann sagt við Kathy, er þau ræddu um stríð- ið einu sinni sem oftar. „Ég verð að gera eitthvað til þess að bjarga mannslífum, og bezta aðferðin fyr- ir mig í því skyni er að gerast þyrluflugmaður og gegna þar björg- unarstörfum." Þau Jim og Kathy giftust, skömmu áður en hann hélt til Suður-Viet- nam. Er þangað kom, hélt hann tafarlaust á vígstöðvarinnar. Hann flaug nætur sem daga, og á tæpum þrem mánuðum hafði hann verið skotinn niður þrisvar sinnum. I þriðja skiptið stýrði hann hrapandi þyrlunni þannig, að hann stofnaði sér í meiri hættu en hinum þrem af áhöfninni. Þyrlan hrapaði niður í skóg. Og er hún rakst á trén, héldu brotin skrúfublöðin áfram að snúast og skáru flugmannsklefann í sundur, tættu hjálminn hans sundur, sneiddu burt hluta af höf- uðkúpu hans og skemmdu heilann. Hann var sá eini af áhöfninni, sem særðist. SEM DÝR í GILDRU Fimmtán dögum eftir flugslysið, var Jim ekið inn í Madiganher- sjúkrahúsið í Tacoma. Þar tók hóp- ur lækna til óspilltra málanna til þess að reyna að .bjarga lifi hans. Hópur þessi var undir stjórn Ge- orge Palmers majórs (dulnefni). Þeir gerðu að brotum og sárum á líkama hans, gáfu honum næringu í æð og komu blóðrásinni í samt lag. En þeir gátu ekki gert neitt gagnvart heilaskemmdunum, sem ollu þessu einkennilega dái, sem hann var í. Eftir nokkurra daga dvöl í sjúkrahúsinu opnaði hann augun, en hann gat ekki beint þeim hnitmiðað né samræmt starfsemi þeirra. Þau voru líka lífvana og tjáningarlaus. Hann gat alls ekki verið kyrr, svo að það varð að binda hann niður í rúmið með handklæðum. Úr hálsi hans bárust óskiljanleg dýrahljóð. Kathy og móðir Jims dvöldu við rúmstokk hans allan daginn og reyndu að vekja hann til lífsins með því að sýna honum ástúðar- merki með orðum og snertingu. Öðru hverju fjarlægðu þær hand- klæðin, sem bundu handleggi hans við rúmið. Og í hvert skipti reyndi hann að kasta sér fram úr rúminu. Hann beit, urraði og glefsaði. Hann
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.