Úrval - 01.05.1971, Page 106

Úrval - 01.05.1971, Page 106
104 ÚRVAL sorgarsvip í þessum stóru, brúnu augum, sem ég þekkti svo vel. Svo teymdi ég hann upp á bakkann aftur. Hann bar snoppuna að græn- um stráum, sem uxu þar í sandin- um. Eg dró upp bóginn á byssunni minni og miðaði vandlega beint á milli augna hans. Það var ömur- legt að -verða að kveðja góðan vin á þennan hátt. „VILLTA VESTRIГ ENDURBORIÐ Og lífið tók aftur að ganga sinn vanagang á Dadanawabúgarðinum. Smalamennskurnar hófust í sept- ember og héldu næstum stöðugt áfram allt fram í maí. Þá hófust ofboðslegar rigningar, sem stóðu allan júní-, júlí- og ágústmánuð. Urkoman mældist 55 þumlungar. Nú vorum við alveg einöngruð frá umheiminum. Til okkar komu að- eins tveir til þrír gestir á ári. Veniulega voru þar á ferðinni op- inberir embættismenn í eftirlits- ferðum eða helztu framkvæmda- stjórarnir í hlutafélagi því, sem rak búgarðinn. Ég átti miklu meira saman við Indíánana að sælda en Jimmy Brown, því að hann var venjulega víðs fjarri að reisa nautaréttir eða að gera við þær. É'g náði því tökum á mállýzku Indíánanna og kynntist lífsvenjum þeirra. Oft liðu heilir sex mánuð- ir, þangað til mér gafst tækifæri til þess að tala ensku. Mig dreymdi nú orðið jafnvel á Wapishanamáli. Við lifðum alisnægtaár og þurrkaár, þegar jörðin varð svört og sviðin eftir graselda og naut- gripirnir sultu heilu hungri og festust í leðju í leit að vatni í upp- þornuðum vatnsbólum. Heppnu kýrnar og hryssurnar eignuðust sín afkvæmi, og þau uxu og döfnuðu og náðu kröftum, áður en hið óblíða regntímabil hófst að nýju. En önn- ur afkvæmi fæddust of seint og voru dæmd til þess að hefja lífs- baráttu í óblíðu umhverfi, er þau yfirgáfu hlýjuna og öryggið í kviði móður sinnar og lentu beint ofan í vatnselg, sem var yfirleitt um fet á dýpt. Allur þessi búrekstur var orðinn úreltur. Það var líkt og „villta vestrið“ endurborið. Aðstæðurnar voru svipaðar þeim, sem liðu und- ir lok í vesturhluta Bandaríkjanna um síðustu aldamót. Nautgripirnir voru látnir alveg afskiptalausir, nema þegar að smölun kom. Það var jafnvel hugsanlegt, að enginn tæki eftir því, þótt 3000 nautgripir dæju úr sjúkdómum eitthvert árið. Á búgarðinum voru að minnsta kosti 5000 nautgripir, sem voru svo villtir, að það var alveg ómögulegt að ná þeim. Það var hægt að bú- ast við því í meðalári, að hægt yrði að ná um 30.000 nautum, reka þau í nautaréttir, telja þau, flokka og brennimerkja ungviðið. En samt var ekki unnt að reka Dadanawabúgarðinn á annan hátt, ef hann átti að gefa einhvern arð. Jarðvegurinn var rýr. Steypiregn- ið, sem helltist yfir landið árlega, skolaði burt öllum nauðsynlegum jarðefnum, svo að eftir varð hvít- ur, sandkenndur jarðvegur'. Það var ekki unnt að koma birgðum frá Georgetown til Dadanawa nema
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.