Vísir - 17.06.1944, Síða 127

Vísir - 17.06.1944, Síða 127
VÍSIR — ÞJÓÐHÁTÍÐARBLAÐ 127 Oeir G. Zoegpa: Þróun vegakeríisins 1874—1944. Fyrir skömmu kom liér út bók, þar sem lýst var betur en áður liefir verið gert, ferðalög- um eins og þau tíðkuðust hér á landi til skamms tíma, baráttu landpóstanna okkar á síðustu öld við vegleysur og óbrúaðar ár, oft við liina örðugustu að- slöðu vegna óblíðrar veðráttu. Slík voru öll ferðalög hér á landi fram undir síðuslu aldamót eða jafnvel lengur. Þegar eftir 1874 vaknaði nokkur áhugi fyrir bættum veg- um, en af eðlilegum ástæðum voru framfarirnar smástígar. Fyrsta fjárveiting, á fjárliags- tímabilinu 1876—77, var 15 þús. kr. og fram til ársins 1893 hafði vei'ið varið samtals rúmlega 420 þús. kr. til vegabóta eða rúmlega 23 þús. kr. að meðal- tali á ári. Ilöfðu fram til þessa verið í gildi ýms lög um vegi og er þau elzlu áð finna í Jónsbók frá 1281 og voru reyndar í gildi ó- breytt til 1861. Allt fram til 1893 var að telja má eingöngu um reiðfæra vegi að ræða. Árið 1893 eru fyrst sett vegalög, sem gera ráð fyrir að sérstakir ak- vegir verði lagðir, voru þeir íiefndir flutningabrautir, og skyldi liggja frá aðalhöfnunum inn í sveitirnar. Aftur á móti Hvítárbrú í Borgar- lirði. gera þau lög ekki beint ráð fyrir, að aðalpóstvegirnir milli lands- fjórðunga verði gerðir akfærir. Var þá jafnframt ætlast til að skip skyldn halda uppi flutn- ingum umhverfis landið til að- alhafnanna. Jafnframt var skip- aður fyrsti landsverkfræðingur- inn, Sig. Thoroddsen. Fjárveitingar hækkuðu nú og urðu að meðaltali næstu 10 árin um 107 þús. kr. á ári. Var þá í fyrsta sinn skipulögð bygging akvega og má telja, að með lög- um þessum, sem tóku gildi 1894, hafi vegamálastofnunin hafið starf sitt, og er hún þannig réttra 50 ára á þessu ári. Heldur voru þó framfarirnar ■ ■ Sf L I ' ' ' hægfara á næsta áratug og fjár- veitingar að meðaltali 149 þús. kr. á ári. Árið 1907 voru enn sett ný vegalög. Samkvæmt þeim var lengd þjóðvega 1620 km. og flutningahrauta 397 km. Talið er að 1913 hafi 417 km. samtals vcrið akfærir vegir og voru það, að langmestu leyti, flutninga- brautirnar. Næstu árin, til 1918, hækka nokkuð fjárveitingar lil vega- mála og eru að meðaltali á ári um 233 þús. kr. Eru akfærir vegir þá orðnir 507 km. að lengd og eru flestir á Suð-Vestur- landi. Er lengsti kaflinn frá Reykjavík austur í Hvolhrepp, 1|f ' .. \A- ' ' ".......' rúmlega 100 km. að lengd. Aðrir kaflar eru mjög dreifðir og lítt í samliengi. Með hyggingu Ölfusárbrúar- innar 1890 má telja, að brúar- gerðir liefjist liér, en áður höfðu að vísu verið gerðar nokkrar timburbrýr. A árunum fram til 1918, að þvi meðtöldu, höfðu verið gerðar þessar brýr: 1890—1905 6 hengibrýr. 1897—1918 12 fastar járn- brýr. 1907—1918 47 steinstevptar brýr. Samfara lausn sjálfstæðis- málsins 1918, færðist v einnig nýtt fjör í samgöngumálin, á- hugi og fjárhagsleg aðstaða til aukinna framkvæmda batnaði mjög. Jafnfrámt hófst bílaöldin og þörf bættra vega sem undir- staða annarra framfara og betri lífsskilyrða, sérstaklega í sveit- um landsins, varð augljós. Fjái- veitingar hækkuðu og akvega- kerfið færðist út. A árunum 1919—1930 voru fjárveitingar að meðaltali um 945 þús. kr. á ári og 1931—1939 um 1,83 millj. kr. Samkvæmt all nákvæmri skýrslu um vegakerfið 1937 var það sem liér greinir: Lengd þjóðvega samtals 4481 km. Hér af vegir venjulega bíl- færir allt árið, að mestu upp- hlaðnir, en einnig nokkrir ruddir kaflar, samtals 1278 km. eða 28,6%. Sumarbílfærir vegir eru yfir- leitt lélegri, 2045 km. eða 45% Vegir aðeins reiðfærir 1158 km. eða 26.0%. Lengd sýsluvega samtals 2331 km., hér af akfærir kaflar 1155 km. ý Vcgakerfið á Islandi 1918 og 1944. Efra merkið táknar vegina 1918, en - ^ neðra merkið vegina 1944.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.