Skírnir - 01.01.1873, Síða 141
DANMÖRK.
lál
Á Færeyjura fundust í haust steinkolanámur eigi all-litlar
(á SuSurey); vissu menn reyndar af þeim áður, en þótti
vandsjeS hvort kolagröpturinn og flutningur þeirra svaraSi kostnaSi.
þeir Koch stórkaupmaSur og Allan Dahl hafa fengiS leyfi til aS
vinna námurnar. — Marsvína-afli Færeyinga var meS bezta móti,
og arSurinn talinn nær 70,000 dala.
Af látnum mönnum dönskum árið sem leiS eru þeir
Grundtvig og Sibbern nafnkenndastir, fjörgamliröldungar báSir
tveir. Nicolai Frederik Severin Grundtvig var fæddur 8. sept. 1783, and-
aSist 2. sept. 1872. Hann varS júbilprestur áriö 1861, og hlaut
þá biskupsnafnbót. SíSustu 33 árin þjónaSi hann Yartov í Kaup-
mannahöfn, og messaSi þar síSasta sunnudaginn sem hann lifSi,
nærri níræSur. Öllum kemur saman um , aS hann hafi vcriS
einhver mestur skörungur sinnar aldar í Danmörku. Hann var
kennimaSur mikill og lærSur vel, sagnaritari og skáld gott, hefur
ort fjölda sálma; þykja þeir lýsa hjartnæmi mikilli og andagipt.
lýafnkeundastur er haun þó orSinn fyrir kenning sína um í(hiSlif-
anda orS” (aS 4(þrjár greinir trúarjátningarinnar”, innsetningarorS
skirnar og kvöldmáltíSar, og faSirvor sjeu allt saman orS Krists,
er hafigeymzt á vörum manna, og eigi aS vera undirstaSa kirkjunnar,
heldur en heilög ritning); ber flokkur sá, er aShyllzt hefur þá kenningu og
trúarlífsstefnuGrundtvigs, nafnhans; er hann nú orSinn allfjölmennur
og atkvæSamikill. Grundtvig var og frumkvöSull þess, aS fariS var
aS koma á fót (1bændaháskólum'’, er svo eru nefndir. Ilafa nú
bæSi NorSmenn og Svíar tekiS þaS upp eptir Dönum. Hann
hafSi fengizt allmikiS viS norræna fornfræSi, og fannst mikiS
um fornsögur vorar íslendinga. Hann var allra manna þjóSlynd-
astur; en miSur var honum sýnt um stjórnarmálefni, og þótti í
því sem sumuöSru helzt til gjarn á öfgar. Útför Grundvigs varhin
veglegasta, og mundu menn ekki jafnfjölmenna líkfylgd síSan jarS-
arför Thorvaldsens. MeSal þeirra, er töluSu yfir moldum hans,
var einn hin norski skáldaspillir, Björnstjerne Björnson. — Fre-
derik Christian Sibbern var fæddur 18. júli 1785,. dó 16.
des. 1872. Hann stundaSi lögfræSi í æsku, en hvarf síSan
aSheimspekisnámi, og varS kennari í heimspekiviS háskólann í Kaup-
mannahöfn áriS 1813. J>ví embætti gegndi hann síSan nær hálfa