Skírnir - 01.01.1881, Page 88
88
ÞÝZKALAND.
á, a8 þaS hefSi veriö Gyöingurinn Lasker, sem hefSi fyrstur
manna á þingi þjóðverja vakiS máls á öllum veiöibrellum og 6-
ráBvendni þeirra manna, sem runnu „i köpp“ a8 gróSamarkinu
á gróSaárunum eptir stríðið, en þá hefSu kristnir menn dansa®
engu ófimlegar um gullkálfinn enn GySingarnir. þessir menn
sýndu einkum fram á, a8 hreifingarnar vœru af illum rótum
runnar, af öfund og hatri. þjóBverjnm gremdist sem fleirum,
aö GyÖingar — eptirhátar Germana — heföu komizt fram fyrir þá
í mörgu, og menn öfunduöu þá af apÖsældinni, þó þeir ættu
hana mestmegnis aö þakka sparneytni sinni og ráÖfimi, eljan
og þrautgæöi. — Bismarck lagöi ekkert til þessarar þingdeilu,
en sagöi þó við annaö tækifæri í einni ræöu sinni (aö því oss
minnir), aÖ hann viidi fyrir engan mun láta skrá sig í tölu
Júðahatenda.
Höfundur Skírnis getur ekki bundizt fáeinna hugleiðinga út
af þessu máli. Hvað kristna trú snertir, þá vita flestir, að
heimspekin þýzka (Strauss, Feuerbach og fl.) hefir á seinni tímum
ekki unnið ötullegar að öðru enn því aö kollvarpa "kenningum
hennar, t. d. um guðdóm krists og ódauðleik sálarinnar — já,
það má svo að orði kveða, að hún hafi rekið Guð almáttugan
út í liin yztu myrkur. Heimspekirit þeirra Scbopenhauers og
Hartmanns hafa haft meiri áhrif á hug manna á þýzkalandi enn
önnur heiinspekingarit á undan, en þau fara þó enn lengra og
kenna, að frumafl tilverunnar sje blind hvöt, sem hafi samlagazt
frumefnunum, og af þeim framleiðt h'f ens skapaða — lífið, sem
sje háð svo mikilli eymd og kvölum, að nautn þess og unaður
vægju til engra muna á móti. Lausnin sje dauðinn, aldeyfu-
dauðinn og ekkert annað, og í þeirri höfn eigi allt hið skapaða
lendingu. Frumaflið sje illt í eðli sínu; allt hiö skapaða beri
þess mark, og hljóti því á að kenna. - Hverjú geta trúleysingar
af Júðakyni bætt hjer á ofan ? — Hinsvegar verður því ekki
mótmælt, að hinar kristnu þjóðir hafa þegið trú sína «á einn
og sannan» Guð af Gyðingum. Vjer getum ekki fallizt á, aö
það sje stórmikill munur á Jehóva, eða Guði Gyðinga, og Guði
þjóðverja, þeim Guði sem barðist með hetjum Gyðinga móti
fjendum þeirra, og hinum er fylgdi þjóöverjum á Frakklandi