Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1885, Blaðsíða 54
186
og hlýðnir, og segir þar um Eggert: „Hand skall
hollde Ether alle vedt sancte Oluff konings log oc gode
gamle sedvaner111 (Hann skal halda við alla yður lög Ólafs
konungs hins helga, og góðar og gamlar siðvenjur);
bæði í þessu brjefi og öðru frá 1523 heilsar Kristj-
án II. íslendingum kærlega með guði og Olafi kon-
ungi helga. Eptir að Ogmundur var orðinn biskup,
vitnaði hann jafnaðarlega í lög Olafs hins helga, og
þegar hann mótmælti siðabótinni eða stóð í gegnyfir-
gangi Dana á þeim tímum, þá bar hann þessi lög
fyrir sig1 2. Jón biskup Arason og Ari lögmaður, sonur
hans, báru aptur á móti fyrir sig „Noregs lög“, „gamla
sáttmála“ eða „íslenzk lög“3.
Eitt, sem enn fremur bendir á þessa sömu skoð-
un manna, að Olafur helgi sje löggjafi íslendinga, eru
myndir af Olafi helga, sem eru í Jónsbók. í Arnar-
bælisbók (A.M. 135, 4to), sem rituð er um 1350, er
dreginn upp konungur á blaðsíðunni framan við Jóns-
bók4; situr hann í hásæti, og hefur spjót í vinstri hendi
og öxi í hægri, og lítur í eggina; þetta er mögulegt
að eigi að tákna Olaf konung hinn helga; en það er
þó eigi hægt að segja neitt víst um það. Aptur á
móti er mynd af konungi f annari skinnbók5 í safni
Árna Magnússonar (Nr. 157, 4to), sem rituð er um
1460. Á mynd þessi vafalaust að vera af Ólafi kon-
ungi. Myndin er framan við Jónsbók; konungurinn
situr f hásæti og hefur knött í vinstri hendi, en í hægri
hendi öxi, og er dreki við fætur hans; á þessum konungi
eru hin helztu einkenni Ólafs helga: dreki, öxi og
knöttur, og verður því að vera hann. Á hinni elztu
1) Finnur Jónsson Historia eccles. II. 258.
2) Finnur Jónsson Hist. eccles. II. 271.
8) Safn til sögu ísl. II. bls. 203—209. Biskupasögur II. bls. 457.
4) ísl. fornbrjefasafn I. bls. 129.
5) ísl. fornbrjefasafn I. bls. 672.