Tímarit Hins íslenzka bókmentafélags - 01.07.1885, Blaðsíða 124
256
reisa kastala og greiða verzlun og iðnaði brautir þar efra;
hefir honum tekizt það furðu vel. Nú er orðinn sá endir
á þeim málum, sem allir vita, að Berlínarfundurinn stofn-
aði Kongóríki, og fékk það í hendur Belgíukonungi, og var
Stanley gerður að jarli yfir ríkinu. Landnám Stanleys hefir
reynzt mjög mikilsvert fyrir vísindin, því bæði hefir sjálfur
hann og félagar hans rannsakað löndin kringum Kongó, og
þær ár, sem í hana falla, og svo hefir hann gert allar sam-
göngur miklu greiðari en áður. Kristniboðar enskir, Com-
ber og Grenfell, hafa farið langar ferðir um Kongólöndin;
hafa þeir t. d. skoðað ána Kúangó — mikið vatnsfall, sem
kemur sunnan í Kongó —, og mælt afstöðu árfarvegsins.
Maður er nefndur Wissmann, herforingi þýzkur; honum
tókst fyrir nokkrum árum að komast yfir Afríku þvera syðst
í Kongóríkinu; í hitt eð fyrra hélt hann á stað aptur og
hafði með sér marga vísindamenn. Wissmann hafði áður
hitt stóra á, er heitir Kassai, og hélt hún mundi renna
norður í Kongó, og ætlaði nú að skoða hana. Stanley
hafði á rannsóknarferðum sínum fundið stórá, er fellur í
Kongó að sunnan, og heitir þar Buki; miklu sunnar og
vestár fann hann vatn, er hann kallaði Leópoldsvatn; úr
því fellur áin Kwa í Kongó, og sameinast hún Kúangó, er
fyr var getið. Menn héldu, að áin Buki væri sama áin
sem Kassai, og nú í sumar vonuðust menn eptir Wissmann
og félögum hans niður þessa á, og beið gufuskip eptir hon-
um við ármynnið; en í september þetta ár (1885) kom sú
fregn til Európu, að Wissmann væri kominn niður á
Kongó, en ekki þá leið, er menn héldu, heldur út um
mynnið á ánni Kwa; segir hann, að Kassai falli gegnum
Leópoldsvatn og fleiri vötn, og gat hann farið alla leiðina
lengst sunnan að á bátum niður í Kongó; er þetta mjög
merkileg ferð, því með þessu er fundin skipaleið frá Kongó
suður undir hæðadrögin fyrir norðan Zambese.
Hinn nafnkunni ferðagarpur og grasafræðingur Schwein-
furth ferðaðist á árunum 1868—71 um héruðin vestan til
við uppsprettur Nílar, og fann þar margt merkilegt, t. d.