Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1918, Síða 73

Eimreiðin - 01.07.1918, Síða 73
Eimreiðin] GUÐ ER ALSTAÐAR NALÆGUR 201 systkinin sín ung og óþroskuð: dýrin! Og ástúðin hans, alkærleikans, vafði litla aumingjann að sér, svo óttinn og angistin sefuðust, og hún varð enn óhultari hjá hon- um en í snjóholunni sinni við hhðina á unnustanum. Svörtu augun hennar horfðu hiklaus í sakleysi sínu upp til hins æðsta og spurðu með einlægni fáfræðinnar: „Vilt þ ú, að bræður okkar, mennirnir, fari svona með okkur fuglana?“ Hann, sem vissi, að ekki gat hún skilið orð alviskunnar — þeir geta það ekki, sem stærri hafa heila- búin og þyngri heilann —, hann lét einungis ástúðina sína vefja hana enn fastara inn í óhultleikann og friðinn sinn, svo að hún gæti hiklaus haldið áfram að tjá hon- um harma sína. „Við vorum svo ung og sæl, og unnustinn minn svo óvenju-fjaðrafagur og hreinn, og þegar vorið kemur, átti eg að verpa og fjölga fuglunum: eiga sjálf unga!“ Og augun hennar, fögur og fávís, horfðu full af eftir- væntingar-fögnuði móðurástarinnar inn í augu algæsk- unnar og báðu hann ásjár með þetta alt saman. En Al- faðir svaraði henni á þann hátt, að hann lét unað sam- úðar sinnar streyma i sálina hennar litlu og fylti hugboð hennar því fyrirheiti, að hún skyldi áreiðanlega fá að verpa í vor og láta fuglunum fjölga. Og svo tók nóttin og svefninn við henni og vafði hana i vordrauma og gleymsku. Næsta morgun var nýr unnusti skamt frá holunni hennar, ropaði nokkurum sinnum og hnikti til hennar höfði, og tók hún því með ungmeyja-hæversku, því hinn var að mestu gleymdur. Tilhugalífið leið fljótt og að lcvöldi hins sama dags kúrðu þau sig o’ní sömu holuna bæði, sem réttskikkuð hjón um aldur og æfi. pau sárin gróa fljótt, sem guði eru fengin til græðslu. „Sæl og blesuð öll!“ sagði vorgolan varamjúka og kysti alt ástúðlega. „Góðan daginn, börnin góð!“ sagði blessuð sólin, um leið og hún lyfti höfðinu upp yfir brúnina,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.