Eimreiðin - 01.07.1918, Page 79
Eimreiðin]
FERÐ i ÞóRISDAL
207
að honum. En þó mun satt vera að Grettir hafi þarna
rcist helluna, þvi að fyrir nokkrum árum fann fjárleitar-
maður nokkur hellu allstóra norðan í Skjaldbreið. Yar
hún brotin í miðju um rauf sem i henni var. Hafði liún
auðsjáanlega verið reist upp á stall einn en fallið niður og
þvi brotnað. Eru því nokkur líkindi til að finna megi
hellu þessa og vel þess vert að ger væri gangskör að því.
Siðan Grettir fór úr dalnum og reisti helluna norðan
í Skjaldbreið, hafa margir reynt að komast í pórisdal.
Fyrstir urðu prestar tveir, Helgi Grímsson og Björn Stef-
ánsson árið 1664. f fylgd mcð þeim voru tveir menn og
var annað unglingspiltur. Fóru þeir ríðandi frá Húsafelli,
upp að Oki og yfir Kaldadal. Yarð þeim ckkert til fyrir-
stöðu alt að jöldinum nema klettabelti eða ás er lokar
fyrir sanda þá, sem framundan eru jöklinum. par eru
fannir neðan undir og urðu þeir að láía hestana kasta
sér þar fram af. Komust þeir yfir sandana og lögðu af
stað yfir jökulinn þrír saman með einn hest. Hina hest-
ana skildu þeir eftir hjá jöklinum og létu piltinn gæta
þeirra. Ætluðu klerkar sér að finna dalinn hvað sem það
kostaði og hétu því að kristna útilegumenn alla er í hon-
um væru. Eftir ýmsa erfiðleika komust þeir yfir jökulinn
og sáu ofan í dalinn. Var þar síst um auðugan garð að
gresja. Engir sáust þar hverir, hvergi skógar, víðir, lyng
né gras. Og hvergi sáust þar útilegumenn til þess að taka
við kristni þeirra. Klerkar sneru sama veg til baka, kom-
ust heilu og höldnu heim aftur og þóttust nýja stigu kann-
að hafa.
Árið 1753 rcyndu þeir Eggert Ólafsson og Bjarni Páls-
son að komast í dalinn af Kaldadal, en sú för mistókst.
Árið 1835 komst Björn Gunnlaugsson í dalinn og voru
sex menn í fylgd með honum. Fóru þeir með hesta upp
jökulinn alt að dalnum, en færðin var ill og urðu þeir
að skilja hestana eftir og fara gangandi í dalinn.
Segir Björn Gunnlaugsson að dalurinn liggi hér um bil
í austur og vestur, austur undan Okinu (en Kaldidalur
liggur nærfelt í útsuður og landnorður, á milli Oks og