Eimreiðin - 01.07.1918, Síða 88
216
FERÐ í ÞÓRISDAL
[EimreiOin
um varlega, þvi sandurinn var líklegur til þess að gleypa
okkur þá og þegar. Eftir því sem ofar dró varð fastara
undir fæti. Við náðum upp að jöklinum eftir nokkra
stund. Voru þar sandöldur miklar, sem skriðjökullinn
hafði rutt undan sér. Til þess að komast í skarðið milli
jöklanna þurftum við að fara yfir skriðjökuls-háls einn
lágan. Við fórum yfir sandöldumar og upp á jökulinn.
Sandöldur þessar voru æði ótryggar og holur viða undir
skorpunni, enda munaði mjóu að við kæmumst þaðan
burt. Á jöklinum var hvast og mjög hált. Svellið var alt
sundurgrafið af vatni, sem rann þar í striðum straumum.
Voru víða breiðar sprungur, en fæstar þeirra voru mjög
djúpar. þegar við komum upp á hálsins sáum við póris-
höfða, sem er þvínær snjólaus og stendur mitt á milli
jöklanna. Við stefndum á höfðann og gengum niður af
jöklinum. Komum við þá i lægð eina djúpa, sem er í lag-
inu eins og þríhyrningur. Lægð þessi er svo lítil um sig
að ganga má hana þvera og endilanga á fimm mínútum.
Var þar snjólaust og sandur í botninum. Á eins rann þar
eftir í tveim kvíslum. Rann hún undir jökulinn og hafði
grafið þar helli víðan og stóran. pcssi á rennur undir
jökulhálsinn og myndar Geitá hinumegin. Fyrir framan
helli þann, sem áin hafði myndað, var hár og viður fann-
bogi eins og fordyri, en jökulhnn hvelfdist dökkblár niður
að sandinum beggja vegna. pórishöfði gengur beint upp
frá lægð þessari. Við fórum upp á höfðann til þess að
sjá betur landslagið. Hann er brattur og erfiður upp-
göngu, er að mestu úr móbergi. Af höfðanum, sem skift-
ist að ofan í tvo tinda, sést jökulrönd sú, er takmarkar
þórisdal að vestan, einnig sést jökulhöfðinn að norðan,
er hggur að botni dalsins. Að sunnan er pórishöfði fast-
ur við jökulinn. Fyrir austan hann er enginn dalur, en
milli hans og Geitlandsjökuls er djúpt gil og þröngt.
Mun það gil hafa vilt Björn Gunnlaugsson, er hann full-
yrti að þórisdalur vissi út að Kaldadal. Gil þetta nemur
alveg að þríhymings-lægð þeirri, er áður er gehð.
Af þórishöfða er mjög einkennileg og fögur útsýn.