Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1918, Side 94

Eimreiðin - 01.07.1918, Side 94
222 KONUNGURINN UNGI [Eimreiðin vera gæddir töfrakrafti, suma til Persalands til þess að kaupa ábreiður úr silki og steindar leirkúsir, og enn aSra til Ind- lands til þess aö kaupa flúr og fílabein, tunglskinsst,eina og tinnuarmbönd, sandelsvið og blágljáa og mjúk sauðarullar-sjöl. En mest af öllu hugsaði hann þó um skrúða þann, sem hann átti að vera í við krýninguna. Var skikkjan öll gullofin, kór- ónan alsett rúbínum og veldissprotinn með perlum í marg- settum röðum og hringum. Hann var einmitt að hugsa um þetta í kvöld, þar sem hann lá í hvílunni dýrmætu og virti fyrir sér trédrumbinn,, sem var að brenna á arninum. Fyrir mörgum mánuðum höfðu verið bornir undir hann uppdrættir, eftir nafntoguðustu snillinga heimsins, og har.n bauð, að vinna skyldi nótt og dag til þess að verkinu yrði lokið, og leitað skyldi um allan heim að gimsteinum, sem væru við hæfi. Hann gat í huga séð sjálfan sig, þar sem hann stóð fyrir háaltari dómkirkjunnar i konungsskrúðanum dýrlega. Lék þá bros um varir hans, og var eins og brosið tendraði blys og leiftur í dökkum skógarálfs-augunum. Eftir dálitla bið reis hann á fætur, hallaði sér upp að út- skornu arinbríkinni og leit i kringum sig í hálfdimmu her- berginu. Veggirnrir voru þaktir ofnum ábreiðum, og var á þær mörkuð sigurför fegurðarinnar. Stór skápur greyptur gimsteinum ýmis konar, stóð í einu horninu, en gegnt glugg- anum gat að líta hirslu eina kynlega að lögun, með gljáandi tiglum úr gullsandi og gullkornum. Á hirslu þessari stóðu mjó glös úr Feneyja-gleri og drykkjarskál úr ónyx með dimmum rákum. Bleikir valmúar voru saumaðir í silkiábreiðuna á sænginni, eins og þeir hefðu dottið úr höndum svefnsins er þær mistu máttinn. Rúmstuðlarnir voru úr skomu fílabeini, háir mjög, og héldu þeir uppi flauels-sparlökunum, en efst uppi voru stórar þyrpingar af strútsfjöðrum, eins og fann- hvítt brimlöður við flúrað silfurloftið. Þar mátti og líta hlæj- andi Narcissus úr grænum málmblendingi og hélt hann skygð- um spegli yfir höfði sér. Á borðinu var grunt fat úr ametyst- steini. Út um gluggana gat að líta hvolfþakiö mikla á dómkirkj- unni, sem reis upp eins og fádæma sápukúlu-bákn, að baki
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.