Ársrit Hins íslenska fræðafjelags í Kaupmannahöfn - 01.01.1916, Page 76
76
Bogi Th. Melsteð
»hver sótraftur á sjó dreginn«, stappað í hann stálinu
og honum kend alls konar hermenska og fantaskapur.
t>ó tildrögin til þessa sjeu all-óhamingjuleg, og sem betur
fer ekki alveg beint viðkomandi okkur, er afleiðingin auð-
sæ, að nú og um langan aldur mun líkamlegt atgerfi og
öll karlmenska skipa æðra sæti en fyrr. Pað væri okkur
ekki holt, að vera amlóðar og eftirbátar annara í þessu
efni. Við erum svo giftusamlega staddir, að við gætum
haft íþróttakensluna fyrir beint markmið, þar sem hún
hjá öðrum þjóðum að eins er ein af hinum fáu gleðilegu
afleiðingum þeirra hörmunga, sem annars ganga yfir.
Verðlaunasjóður handa duglegum og
dyggum vinnuhjúum í sveit.
I.
Maður einn, sem eigi vill láta nafns síns getið, hefur
boðið að gefa ioo kr. sem dálitla byrjun til þess að
stofna með verðlaunasjöð handa duglegum og
dyggurn vinnuhjúum í sveit með þeim skilyrð-
um, er nú skal greina:
i. Að landsmenn vilji sinna málinu að minsta kosti
svo, að á fyrsta ári komi loforð frá jarðeigendum eða
ábúendum eða einhverjum öðrum mönnum um að greiða
í sjóðinn fyrir ioo jarðir tillög, er sjeu eigi minni fyrir
hverja jörð en nú segir: