Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Síða 26
26
JÓN ÞÓRARINSSON
hljómsveitarverkanna eru að sjálfsögðu leikhústónlistin:
ballettarnir þrír og tónlist við a. m. k. þrjár sýningar íslenskra
leikrita. Þá er hlutur hljómsveitar í kórverkunum einnig mikill. —
Sérstöðu hafa fimm verk fyrir framsögn með undirleik, op. 35—39,
skrifuð í einni lotu á árinu 1955 og sýnilega ætluð til hljómsveitar-
flutnings þótt aðeins eitt þeirra virðist hafa verið fullgert í þeim
búningi.
4) Kammertónlist. I þeim flokki eru þrjú verk sem upp úr
standa, en það eru sónöturnar fyrir fiðlu og píanó, op. 14, trompet
og píanó, op. 23, og selló og píanó, op. 65. Hin síðastnefnda er
síðasta stóra verk Karls. Auk þess teljast til kammertónlistar tvenn
tilbrigði, fremur léttvæg, op. 16, Prelude og fúga fyrir strengjakvar-
tett, án opus-tölu, o. fl.
5) Þjóðlagaútsetningar. Þær eru mjög margar og margvíslegar
og gætu raunar skipst á þá fjóra flokka sem fyrr eru taldir. Þær eru
ýmist gerðar fyrir hljómsveit, kór og hljómsveit, píanó, einsöng og
píanó, fiðlu og píanó o. s. frv. - Hér eru einnig einfaldar
útsetningar fyrir fá strengja- eða blásturshljóðfæri, vafalaust ætl-
aðar til kennslu.
6) Kirkjutónlist. Til þess flokks teljast tvær kantötur: Hátíðaljóð í
tilefni 9 alda afmælis biskupsstóls í Skálholti, op. 42, textinn eftir
séra Sigurð Einarsson, og Kirkjukantata, op. 46, sem samin er við
ljóð eftir séra Emil Björnsson í tilefni af kirkjuvígslu Oháða
safnaðarins í Reykjavík. Þrjú sálmalög eru op. 22, og meðal allra
síðustu verka Karls eru önnur þrjú sálmalög, og fylgir hverju
þeirra forleikur (prelúdía). Þessi lög eru op. 61, 62 og 64, en op. 63
vantar í þau handrit sem hér liggja fyrir og hefur þar ef til vill verið
fjórða lagið í þessum flokki.
7) Lúðrasveitartónlist. Hér að framan hefur verið gerð grein
fyrir hinu mikla starfi Karls í þágu lúðrasveitanna í landinu. Við
það bætist að eftir hann liggja að minnsta kosti tíu frumsamin
göngulög (marsar) fyrir slíka hljóðfærafiokka, auk þjóðlagaút-
setninga. Ekki liefur tónskáldinu þótt taka því að tölusetja þessi lög
á sama hátt og fiest önnur verk sín.
8) Dans- og dægurtónlist. Um hana er hið sama að segja, og er
fyrr að því vikið.
I eftirlátnum skjölum Karls O. Runólfssonar er bréf, dags. 15.
október 1968, frá þýskum manni, Hans Ulrich Schumann, sem var
að safna efni í uppsláttarrit um nýja tónlist (Encyclopedia of
Modcrn Music) og falast eftir upplýsingum um verk Karls. Bréf-