Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Page 42
42
HÖRÐUR ÁGÚSTSSON
Hér hefur Matthías Þórðarson farið öðruvísi að. Tvö þurfti
hann járnin á skáphurðina hægra megin, litist vel á það frá Hafliða
bónda og því ákveðið að láta smíða annað alveg eins. Frumgerðin
er að ofan, en eftirmyndin að neðan. Sögn Sigurðar Vigfússonar,
sem Matthías lætur vera innan gæsalappa, þegar hann semur lýs-
inguna, er ekki rétt að einu leyti. Eggert Olafsson var ekki úr
Svefneyjum, heldur Hergilsey. Hann hafði áður búið í Flatey og
Sauðeyjum. Eggert þessi var uppi á árunum 1732 til 1819, frægur
„stórræða- og nytsemdarmaður“ á sinni tíð!5 Ekki er hann í
heimildum orðaður við hagleik. A einum stað er þess þó getið, að
Eggert hafi smíðað sér bát!6 Það gerir enginn, sem ekki er
sæmilega vel að sér til handanna. Sennilegt er, að orðsporið, sem af
honum fór sem atorkumanni, hafi skyggt á hina hljóðlátu smíða-
sýslan. Engin ástæða er því að ætla annað en rétt sé hermt um
höfund hurðarjárnsins, sem hér er til umræðu. Svipur þess er
allur fínlegri en járnanna frá Skálholti, þó að ættarmótið sé það
sama. Við nefndum barokstíl í því sambandi, hér má taka sér orðið
rokókkó í munn, enda var sú hreyfmg mest í tísku, er ætla má að
lömin úr Hergilsey hafi verið smíðuð, eða á ofanverðri 18. öld.
Heimildir
1. Skýrsla um Forngripasafn íslands II, Kaupmannahöfn 1874, bls. 29.
2. Islandske annaler, Christiania 1888, bls. 117 og 322; Sturlunga I, Reykjavík 1946, bls.
123.
3. Islandske annaler, bls. 133 og 192.
4. Bps. B., III, 5.
5. Bps. B., VI, Laufás.
6. Kirknasafn XIX, 2, A, 1, bls. 88 v.
7. Sama heimild, bls. 59 v.
8. Bps. B., VI, Laufás.
9. Sama heimild.
10. Bps. B., III, 6.
11. Roar Hauglid. Norske stavkirker, dekor og udstyr, Oslo 1973, bls. 304—305.
12. Safnskrá Þjóðminjasafns.
13. Um járn þessi hef ég þegar íjallað í ritinu Skálholt, kirkjur, Reykjavík 1990, bls. 15-16.
Um það sem segir um hurðir kirkna í Skálholti vísast og til þessa rits og viðkomandi
kirkju.
14. Safnskrá Þjóðminjasafns.
15. Páll Eggert Ólason: ístenzkar æviskrár V, Reykjavík 1952, bls. 304—305.
16. Játvarður J. Júlíusson: Umleikinn ölduföllum, Hafnarfirði 1979, bls. 55.
Myndin af hurðarjárnunum frá Laufási sýnir einungis fremri hluta þeirra.