Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Síða 54

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1991, Síða 54
54 STEFÁN KARLSSON eintaki Árnastofnunar í Kaupmannahöfn af bók hans hefur Jonna Louis-Jensen vísað til Sleðbrjóts á Jökuldal í Manntali 1703.41 Þar eru tvö nafnanna, Styrbjörn Þorsteinsson og Guðmundur Þor- steinsson, og þar eð Styrbjarnar-nafn er fátítt er trúlegt að um sömu menn sé að ræða á spássíu brotsins og í manntalinu. Styrbjörn og Guðmundur vóru bræður, 26 og 22 ára 1703, synir annarra hjónanna á Sleðbrjóti, þeirra Vigdísar Styrbjörnsdóttur og Þorsteins Magnússonar. Brotið VI mun því að öllum líkindum hafa verið á Sleðbrjóti um eða rétt fyrir aldamótin 1700.42 Jafn- framt hefur Heiko Uecker bent á að Hjörleifur Erlendsson, sem var prestur á Hallormsstað um og eftir aldamótin 1600, hafi átt Vínarsaltarann 2713.43 Hvorttveggja styður hugmyndina um að starfsvettvangur skrifarans hafi verið á Austurlandi. Ur því að öll handrit þessa skrifara hafa að geyma kirkjulegt efni, er ekki ólíklegt að lærður maður hafi skrifað þau.44 Annar tveggja votta við bréfagerðina 1569 var Árni prestur Ólafsson, og prestur með þessu nafni, sennilega einn og sami maður, kemur við ýmsar heimildir fyrir austan á árabilinu 1569—1614; hann mun hafa verið prestur í Þingmúla í Skriðdal frá því um 1570 og síðar að Þvottá í Álftafirði.45 Þennan Árna prest taldi Heiko Uecker vera líklegasta skrifara bréfsins í Ási,46 og hann hefur væntanlega verið ungur maður 1569, þar eð hann kemur enn við sögu 1614; Uecker hugði að hann hefði varla verið fæddur fyrr en 1535—40, og e.t.v. hefur hann ekki verið fæddur fyrr en 1540—45, úr því að Ólafur Árnason, sem trúlegt er að hafi verið faðir séra Árna, var prestur á Hallormsstað 1543-87.47 Það er því óvíst að Árni Ólafsson hafi verið farinn að skrifa bækur áður en Fræðaprédikanir Odds Gottskálkssonar vóru prentaðar 1562, en ekki ólíklegt að hann hafi verið við nám í Skálholti á öndverðum biskupsárum Gísla Jónssonar (1558—87). Skrifari þessara handrita liefur augsýnilega verið fræðari: Hann hefur skrifað upp þýðingu á lífsreglum Jesú Síraksbókar, 41 Manntal á íslandi árið 1703 ... (Rv. 1924-47), 385. 42 Der Wiener Psalter (sjá nmgr. 33), lviii. 43 Der Wiener Psalter (sjá nmgr. 33), lix. 44 Til hins sama bendir sérstök £-gerð sem bregður fyrir í bréfinu 1569 og líkist gríska stafnum gamma; þá £-gerð nota sumir lærðir menn á seinni hluta 16. aldar, t.a.m. Gísli biskup Jónsson, sbr. Westergárd-Nielsen, To bibelske visdomsboger (sjá nmgr. 24), 59 og planche 18. 45 Hannes Þorsteinsson, Ævir lœrðra manna (handrit í Þjóðskjalasafni fslands); Páll Eggert Ólason, íslenzkar æviskrár ... I (Rv. 1948), 65. 46 Der Wiener Psalter (sjá nmgr. 33), Iviii. 47 Der Wiener Psalter (sjá nmgr. 33), lviii og cv.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.