Réttur - 01.10.1934, Blaðsíða 50
vænta annars en ábyrgðarlausrar æfintýramennsku,
sem enga samleið getur átt með hinni alvarlegu, þaul-
reiknuðu brezku drottnunarstefnu. Jafnvel slíkur jöt-
unn, sem brezka heimsveldið, verður nú á dögum að
eiga sér öfluga bandamenn, ef hann vill troða ill-
sakir við Sovétríkin. Þau reyndust Bretlandi þung í
skauti þegar í hitt eð fyrra, er mál ensku verkfræð-
inganna voru á döfinni í Moskva. — Af þessum ástæð-
um kaus Bretland að láta sér góður þykja lélegur leik-
ur og undirrita boðsbréfið til Sovétríkjanna um inn-
göngu í Þjóðabandalagið.
I Austur-Asíu, þeim fylkingararminum, þar sem
friðinum hefir verið einna mest hætta búin, hefir
styrkleikahlutfallið einnig tekið breytingum heims-
friðnum í vil. Margra ára kreppa lamar æ. meir hern-
aðarmátt Japana, sovétbyltingin í Kína veikir aðstöðu
þeirra, drottnunarstefna þeirra á Kyrrahafinu hefir
beðið ljótan hnekki við samninga Bandaríkjanna og
SSSR.
Alla þessa örðugleika og andstæður innan auðvalds-
heimsins hafa Sovétríkin hagnýtt sér á meistaralegan.
hátt í því skyni að hindra styrjöldina, sem vofað hefir
yfir. Þeim hefir tekizt það fram að þessu. Þátttaka
Sovétríkjanna í Þjóðabandalaginu hlýtur, eins og nú
er ástatt, að veita þeim aukna möguleika í þessum
efnum.
Þessi glæsilegi árangur kann að freista sumra frið-
arvina til of mikillar bjartsýni. Það má ekki verða..
Einmitt nú eru ófriðaröflin að verki af meiri ákefð
en nokkru sinni áður. Hernaðarklíkurnar, fasisminn
og vopnasalarnir skara að stríðsglæðunum af öllum
mætti, sendiboðar þeirra eru; að morðiðju sinni um
allar borgir, til þess að egna saman þjóðirnar. Styrj-
aldarhættunni verður aldrei útrýmt fyrr en verka-
manna- og bændastjórn, sovétríki, er komin á um
allan heim.
146