Réttur - 01.10.1934, Blaðsíða 78
lygi og blekkingum, kúgun og ranglæti og nema handa.
þjóðinni land hins sanna frelsis, þar sem sannleikurinn
sjálfur situr að völdum, og í skjóli hans blómstra hvers-
konar dyggðir og farsæld, sem „guðsneistinn í manns-
sálinni“ hefir þráð og tilbeðið frá upphafi síns lífs. Við
vorum báðir jafn-reiðubúnir, og þá ekki síður til að
standa augliti til auglitis við blekkingar þeirrar kirkju,
sem við ætluðum að þjóna. Það var okkur báðum jafn
sjálfsagt verk að afhjúpa þær blekkingar og nota að-
stöðu okkar til að leiða lýðinn í allan sannleika, einnig
í þeim efnum.
Við vorum á ýmsan hátt sorglega óklárir á málunum,
og hátíðlegustu slagorðin okkar voru óákveðin og myrk
að merkingu. En okkur var alvara, og svartasta aftur-
haldið sá, að hætta var á ferðum og hataði okkur. Sann-
leiksdaður guðfræðikennaranna kom okkur fyrir sjón-
ir sem hrein vísindamennska undir merki fölskvalausr-
ar sannleiksástar. Þó gengum við báðir þegar feti lengra
en þeir, komum auga á kerlingarhrukkurnar í sál Sí-
vertsens og hneyksluðum hann með bersögli og nýjum
uppgötvunum í sannleiksleitinni. Slagorð kennaranna
um leit að sannleikanum gat leitt út á háskalegar braut-
ir meðal þeirra, sem tóku hlutina alvarlega. í þeim efn-
um er eg einna skýrasta dæmið. En þú virtist einnig
vera á mjög hættulegri leið. í nafni sannleikans gerðir
þú ýmsar merkilegar uppgötvanir. Eg vona, að eg særi
þig ekki með því, þótt eg rifji upp ýmislegt, sem þú
skrifaðir á þeim árum. Því að það verður þú að reyna
að skilja, að þær ritgerðir eru það eina, sem haldið
geta uppi minningu þinni sem skynsemi gæddrar veru.
II.
Á skólaárum þínum samdir þú erindi, sem þú nefnd-
ir: „Trú og siðgæði“. Það birtist í Ganglera 1928. Sí-
vertsen lýsti áhrifum þessa erindis þannig: „Það var
eins og mér væri fyrst snúið þrisvar í hring í lausu lofti
og svo væri hellt yfir mig köldu vatni'h Unnendur frjáls-
174