Réttur - 01.10.1934, Blaðsíða 26
þiljur og leggja í rúmið, þar var á ný nostrað við
hann og teknar af honum myndir.
í Schanghai tók á móti honum heill herskari af
stjórnmálamönnum og glæpamannaforingjum. 1
broddi fylkingar var enginn annar en Tú-Jueh-seng,
maðurinn, sem hafði látið flugvélina fara með lækn-
ana til að sækja hann, alræmdur glæpamannaforingi,
kallaður konungur Undirheimanna, foringi ópíum-
smyglaranna og mannaræningi. Nankingstjórnin hafði
útnefnt hann til „fulltrúa til að bæla niður kommún-
istahreyfinguna í Schanghai".
Sérstakur sjúkravagn beið hershöfðingjans og síð-
an var haldið í skrúðgöngu til sjúkrahússins. Öll blöð-
in birtu allar myndirnar, sem teknar höfðu verið af
honum á leiðinni.
Ég reiknaði út, hve mikið kostaði að lækna hand-
leggsbrot þessa hershöfðingja, frá því hann særðist og
þangað til hann mundi getafarið af sjúkrahúsinu. Það
var fimmtán þúsund dollarar!
Sex dollarar fyrir fátækan hermann, sem berst í
opinni orustu gegn ofureíli japanska hersins. 15,000
dollarar fyrír handleggsbrot glæpamannaherforingja,
sem óhultur stjórnar árás á rauða her verkamanna og
bænda!
Og viðkvæðið er: ,,í Kína eru engar stéttir, við erum
öll fátæk“.
(Halldór Stefánsson íslenzkaði.)
1. maí á. Rauða for^Suu.
Eftir Kristinn Andrésson.
Það var 1. maí á Rauða torginu í Moskva, sem við
hlökkuðum til mest allra daga í Sovétríkjunum. Allt,
sem við höfðum heyrt um hátíðahöldin, hv,er í sínu
landi, áhrifin, er við urðum fyrir dagana áður í Lenin-
grad og Moskva, allur undirbúningurinn, er við sá-
122