Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1960, Síða 67

Andvari - 01.10.1960, Síða 67
ANDVARI I FYLGD MUÐ '\UDEN 257 við á ferðalaginu. Hann vildi sem flest vita um menningu þjóðarinnar og bók- menntir, ekki sízt nútíma lýrik. Reyndi ég að þýða fyrir hann úr ljóðum góð- skáldanna, á harla óburðuga ensku auð- vitað, miðað við verkin, sem þýða átti. Urðu þeir einkum fyrir valinu, Davíð Stefánsson og Tómas Guðmundsson, því að Steinn Steinarr, sem er skyldari Auden, var þá skammt kominn á skáld- skaparbraut sinni. Ég man eftir, að einu sinni bað A. mig að snara fyrir sig öllu kvæði Tómasar „í Vesturbænum", og kostaði það mig langan tíma og áreynslu, og varla held ég, að Tómas minn hefði kunnað mér miklar þakkir fyrir þýðing- una þá! Rann mér svo til rifja meðferð mín á ljóðum góðskáldanna, að ég spurði A., hvort ekki færi bezt á, að ég hætti þessu basli. En ekki vildi hann það, sagði, að með ófullkominni endursögn minni næði hann þó efni og anda kvæð- anna, þótt búningurinn færi forgörðum, en oftast fór ég með þau á íslenzku fvrst, svo að hann fengi nasasjón af hljómfalli, bragarháttum og rími. Okkur, fylgdarmönnum Audens, hefir stundum verið legið á hálsi fyrir að hafa kennt honum ýmsar vísur, sem væru þjóðinni til lítils sóma. En satt að segja var það mest honum sjálfum að kenna, hann sóttist mikið eftir öllum skrýtnum og jafnvel „ljótum“ vísum og mat íslenzku ferskeytluna mikils. Sjálfur kunni hann ósköpin öll af ýmiss konar þulum og skrýtnum vísum. Kann ég sumt af þessu smælki enn, t. d. þetta: „Jonathan Swift / never went up any lift. / Neither did Robinson Crusoe / do so.“ Það var heitt á Möðrudalsöræfum þennan dag; ryk, melar, háar melgresis- þúfur, berir klettar, auðnin allt um- hverfis. Það er líklega af því, að ég var þarna á ferð með ensku skáldi, að línur ur kvæði eftir annað enskt skáld minna mig alltaf á auðnirnar á Möðrudalsfjöll- um. Það er þetta erindi úr kvæði T. S. Eliots, „The Hollow Men“: This is the dead land This is cactus land Elere the stone images Are raised, here they receive The supplication of a dead man’s hand Under the twinkle of a fading star. Is it like this In death’s other kingdom Waking alone At the hour when we are Treinbling with tenderness Lips that would kiss Form prayers to broken stóne. Þegar kom austur á heiðina, sagði ég Auden frá því, að í þetta umhverfi hefði Halldór Kiljan vafalaust sótt eitthvað af fyrirmyndum í Sjálfstætt fólk (Sbr. frá- sögn H. K. L. sjálfs í Dagleið á fjöllum: Skammdegisnótt í Jökuldalsheiðinni.) Þótti A. fengur að því, en hann mat Kiljan mikils. Eins og áður sagði var heitt í veðri þennan dag, leiðin afar seinfarin og þreyt- andi, vegurinn á þessum slóðum var víða ekki annað en djúp hjólför í sandinn, og þessar fáu hræður, sem í vagninum voru, byltust fram og aftur klukkustund eftir klukkustund. Sótti á menn þreyta, sultur og þorsti þegar leið á daginn. Hlökkuð- um við ákaflega til að komast niður að Skjöldólfsstöðum og leiddum getum að því, hvað við mundum fá að borða þar, ekki hvað sízt Auden, sem var orðinn glorhungraður. Sagði ég honum, að hér væri vænst sauðfé á íslandi og þver- handar þykkar sauðarsíðurnar, og mund- um við vonandi fá slíkt góðgæti. Loks komumst við niður að Skjöld ólfsstöðum. Var fyrst borin á borð sæt- súpa. Þegar Auden sá hana, emjaði hann mjög, en sætar súpur bar hann sér aldrei 17
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Andvari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.