Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1960, Page 82

Andvari - 01.10.1960, Page 82
272 BALDUR LINDAL ANDVARl sú rannsókn, sem þá var hafin, standi ennþá yfir. Málið hefir á engan hátt reynzt einfalt viðureignar, og enn er óvíst, hvort öll kurl eru til grafar komin. Saltvinnsla erlendis. Til þess að hægt sé að gera sér ljósari hugmynd um möguleikana hér, er gott að hugleiða algengustu aðferðirnar er- lendis og síðan þær nánar, sem hclzt má hafa til hliðsjónar. Mestur hluti saltsins er nú orðið unn- inn úr neðanjarðarsaltlögum. Þessi lög stafa frá uppþornuðum sjó og urðu til á fyrri jarðtímabilum. Saltið í þessum fornu lögum er sums staðar unnið með venjulegum námugreftri, en annars staðar með því að skola því upp með vatni. Vinnsla salts með skolun fer fram á þann hátt, að boruð er hola niður í salt- lagið. Niður um þessa holu er þrýst vatni, sem leysir upp saltið í viðkomandi jarð- lagi, og vatnið berst nær mettað salti til yfirborðsins. Slíkar borholur eru oft mjög djúpar. Ur þessum saltlegi er hreint salt unnið á þann hátt, að vatnið er látið gufa burtu. Við það myndar saltið kristalla, sem auð- veldlega má skilja frá. Hreinir saltkrist- allar eru glærir og teningslagaðir, þótt sum skilyrði geti valdið margs konar kristalþyrpingum. Stærð kristallanna er einnig háð myndunarskilyrðum, en með flestum saltvinnslutækjum er unnt að hafa vald á kristallastærðinni innan tak- marka, sem gerð tækjanna segir til um. Vatn það, sem hér þarf að ná burtu, nemur venjulega 3—4 kg á móti hverju kg af salti. Uppgufunin fer fram í lok- uðum kötlum, sem eru hitaðir með gufu. En til þess að spara orkuna er gufa sú, sem fæst frá vatninu í fyrsta katlinum, notið til þess að valda uppgufun við lægri þrýsting í þeim næsta, og svo koll af kolli. Oftast eru minnst fjórir katlar tengdir saman á þennan hátt. Þessi tæki kallast margþrepa eimar og geta þeir sparað gufu í hlutfalli við fjölda þessara eininga í röð. í stað 4—5 kg af gufu á móti hverju kg af salti þarf því ef til vill aðeins um eitt kg af gufu. Salt er einnig unnið úr söltum stöðu- vötnum og úr sjónum sjálfum. Yfirleitt eru þá notaðar aðferðir, scm byggjast á náttúrlegri uppgufun. Sums staðar í suð- lægum löndum er árstíðabundinn þurrka- tími, svo að uppgufun vatns verður til muna meiri en úrkoma. Þar má setja sjó í uppistöður við ströndina og láta náttúr- una síðan sjálfa um eiminguna. Þegar uppgufunin er orðin hæfilega mikil, er saltinu rakað upp. Og þrátt fyrir það, að sjórinn er mjög þunn saltupplausn, má vinna ódýrt salt með þessu móti. Mestur hluti þess salts, sem við Islend- ingar flytjum inn, er einmitt unnið á þennan hátt. lnnlendar aðstæður. Það er síður en svo, að hér séu fyrir hendi venjulegar aðstæður til saltvinnslu. Við höfum engin saltlög falin í jörðu, né heldur góð veðurfarsleg uppgufunar- skilyrði fyrir sjó. En hvers vegna dettur okkur ennþá í hug, að saltvinnsla sé hér möguleg? Saltinnflutningur landsmanna hefir á undanförnum árum verið allmikill. Síðast- liðin 10 ár hafa þannig verið flutt inn 51.000 tonn árlega að meðaltali, enda þótt nokkrar sveiflur hafi verið á. Megin hlutinn af þessu salti er notaður til fisk- söltunar, en hún fer að mestu fram á Suðvesturlandi, að Vestmannaeyjum með- töldum. Væri saltverksmiðja vel staðsett með tilliti til þessa markaðar, gæti dreif- ingarkostnaður væntanlega orðið lítill- Hins vegar er flutningskostnaður á salti frá útlöndum oftast tvisvar sinnum hærri en útflutningsverð frá viðkomandi landi,

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.