Andvari

Volume

Andvari - 01.10.1960, Page 86

Andvari - 01.10.1960, Page 86
276 BALDLIR LINDAL ANDVARl öflun fersks vatns úr sjó. Auk þessa eru slíkar aðferðir í örri þróun víða annars staðar. Enda þótt tilgangurinn sé allt annar, miðast öflun fersks vatns úr sjó og frumvinnsla sú, sem hér er rætt um, að miklu við það sama. Það er hvort tveggja sundurgreining á vatni og salti sjávarins. Verður nú skýrt í stuttu máli frá nokkrum þeim aðferðum, sem nú eru efst á baugi á sviði öflunar fersks vatns úr sjónum. Við skulum byrja á eimingaraðferðun- urn, sem í höfuðatriðum eru tvær. 1 fyrsta sæti eru margþrepa eimar. A þá var minnzt að framan í sambandi við salt- gerð. Mjög stórar stöðvar til þess að vinna ferskt vatn hafa verið byggðar með þeim sem aðaltækjum. Fengizt hefir mikil- væg reynsla, sem nota má í sambandi við frumvinnslu í saltvinnslu. Þessir eimar eru að sjálfsögðu gufuhitaðir. Hin aðferðin er hin svokallaða gufu- þjöppunareiming. Hugsum okkur, að við höfum fyrir framan okkur eitt þrepið úr venjulegri margþrepa eimingarsam- stæðu. En í stað þess að gufan frá sjónurn í því fer venjulega í næsta þrep við, til þess að valda þar uppgufun, þjöppum við henni saman með dælu og látum hana valda viðbótaruppgufun í sama þrepi og hún átti uppruna sinn. Slík eiming krefst fyrst og fremst hreyfiorku til að knýja þjöppuna, en sára lítillar varmaorku. Þessi aðferð var mikið notuð í síðustu heimsstyrjöld til þess að afla fersks vatns úr sjó. Japanir hafa notað þessa aðferð til þess að vinna salt úr sjó. Rétt er að geta hér urn svonefnda raf- síun á söltu vatni, sem hefir verið mikið reynd síðastliðin 10 ár. Með þessari að- ferð er unnt að kljúfa sjó í ferskan og mikið saltan hluta. Þetta byggist á jóna- tilfærslu í gegnum þunnar himnur, sem gerðar eru úr vissum jónaskiptiefnum. Notuð er raforka til þess að halda til- færslunni við, Þessi aðferð hefir vcrið töluvert notuð til þess að afla fersks vatns, þar sem allt að hálfsaltur sjór er fáanleg- ur. Ennfremur hefir verið skýrt frá til- raun, sem verið er að gera í Japan til að nota þessa aðferð til frumvinnslu sjávar fyrir saltverksmiðju. Frysting sjávarins í því skyni að afla fersks vatns vekur nú orðið rnikla athygli. Það hefir löngum verið Ijóst, að þegar sjór frýs, innihalda ískristallarnir sjálfir ekki salt. Sú aðferð hefir meira að segja citt- hvað verið notuð við að frumvinna sjó við náttúrleg skilyrði vegna saltgerðar, og er aðferðin ævagömul. Það, sem fyrst og fremst hefir vakið athygli sérfræðinga á þessu fyrirbrigði nú, er að frysting á sjó þarf aðeins einn sjöunda hluta þeirrar orku, sem upp- gufun krefst. Við myndum að vísu geta svarað þessu því til að í margþrepa eim- um má minnka inntaks orku tækjanna svo rnjög með mörgum einingum, að hún verði ekki öllu meiri en við frystingu. En við megum ekki gleyma því, að það eyk- ur stofnkostnað eimingartækjanna, sem er nærri hlutfallslegur við fjölda þrepanna. Nú er verið að reyna tvær megin- aðferðir við frystingu sjávar. I annarri fer frystingin fram við mjög lágan loft- þrýsting. Lágþrýstiaðferðin byggist á því, að með loftþynningu má fá vatn til þess að sjóða, jafnvel við frostmark. Ef enginn hiti kemst inn í það rúm, þar sem vatn sýður á þann hátt, tekur nokkur hluti vatnsins að frjósa. Hið ferska vatn er numið burtu bæði sem gufa og með því að skilja ískristallana frá lokaleginum. Hin frystiaðferðin styðst við frystiefni, sem er óleysanlegt í vatni. Fljótandi frysti- efni, svo sem butan, er blandað saman við sjóinn. Butanið sýður við frostmark vatns, sé þrýstingurinn nálægt loftþunga. Við suðu þess myndast ískristallar í vatn-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.