Andvari - 01.01.1980, Blaðsíða 22
20
JÓN JÓNSSON
ANDVARI
Eftir Arna Friðriksson liggur mikill fjöldi ritgerða á sviði almennrar
náttúrufræði og fiskifræði.
Fyrstu skýrslur hans um fiskirannsóknir birtust í ársritum Fiskifélags
Islands á árunuin 1932-1937, en eftir að hann tók við stjórn fiskideildar,
hirti hann undirstöður rannsókna sinna í Ritum Fiskideildar, oa kom
fyrsta skýrslan um rannsóknir fiskideildar árið 1940 og fjallaði um rann-
sóknir á árunum 1937—1939. Rit Fiskideildar er nú aðalritröð Hafrann-
sóknastofnunar, og birtast þar einungis ritgerðir á erlendum má'lum, aðal-
lega ensku.
Hér að framan hefur oft verið vísað í rit hans um Norðurlandssíldina,
sem út kom árið 1944. Þetta er án efa aðalverk Árna Friðrikssonar, og
vöktu kenningar hans um göngur síldarinnar milli Noregs og Islands
feikna athygli jafnt innanlands sem utan. Greinarhöfundur man eftir því,
að nokkrir starfshræður hans tóku þessu fálega, en það kom fljótlega
annað hljóð í strokkinn, þegar árangur síldarmerkinganna fór að koma
í ljós.
I Ritum Fiskideildar gerði Árni, svo sem að ofan segir, grein fyrir
rannsóknum sínum eftir að hann hætti hjá Fiskifélagi Islands. Hann skýrði
þar frá laxarannsóknum sínum á árunum 1937-1939, rannsóknum sín-
um og dr. Gunthers Timmermanns á hrygningarstöðvum vorgotssíldar
1950, og í því riti hirtu þeir Olav Aasen skýrslur sínar um norsk-íslenzku
síldarmerkingarnar og árangur þeirra.
Arni skrifaði einnig mikið í Náttúrufræðinginn um hin margvísleg-
ustu efni og eins í Ægi, tímarit Fiskifélags íslands, og Víkinginn, tíma-
rit Farmanna- og fiskimannasambands Islands.
Þá birti hann einnig árlegar skýrslur um ástand fiskstofna á íslands-
miðum í ritum Alþjóðahafrannsóknaráðsins, Journal du Conseil og Rapport
et Proces Verbaux.
Aður hefur verið getið bókar hans Aldah\'örf í dýraríkinu, sem kom
út árið 1932, en þar rekur hann þróunarsögu lífsins á jörðinni á skýran
og alþýðlegan hátt. Sarna ár kom út bók hans Skarkolaveiðar lslendinga
og dragnótin. Tilgangur bókarinnar var að kynna Islendingum dragnóta-
veiðar á hlutlægan hátt og reifa ýnrislegt það, sem dragnótinni hafði
verið fundið til foráttu. Bókin er einnig almennt yfirlit um fiskveiðar
Islendinga og áhrif veiðanna á helztu fiskstofna okkar. Árni var ein-
dreginn fylgjandi dragnótar og taldi hana bezta möguleikann til að rétta