Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1980, Blaðsíða 111

Andvari - 01.01.1980, Blaðsíða 111
andvari TIL JÓNS SIGURÐSSONAR Á GAUTLÖNDUM 109 er lifði þróttmiklu lífi til hárrar elli, hafði nóg fyrir sig að leggja og gat að lokum eftirskilið börnum sínum bæði fé og eignir. En ofar öllu er þó umhyggjan fyrir hinum stóra barnahóp og velferð hans. Yfir honum vakir hann og þau hjónin bæði til hinztu stundar, reyna að miðla þar á milli og hjálpa þeim, er þeim finnst miður mega sín. En í þeirri viðleitni getur svo farið, að einhverjum þyki á sig hallað og gamli maðurinn verði jafnvel fyrir ónotum. Hann lætur sig þó hvergi, hugurinn er jafnkvikur og höndin jafn- styrk í síðasta bréfinu sem hinu fyrsta. Hér fara nú fyrrnefnd ævisögubrot sr. Jóns: „Ég er fæddur sunnudag fyrstan í Góu 1781 að Helgastöðum í Reykjadal, af foreldrum stúdent og umboðsmanni Þorsteini Jónssyni og Hólmfríði Jónsdóttur, og skírður samdægris af móðurföður mínum, síra Jóni Jónssyni presti sama staðar. Frá Helgastöðum fór ég vorið 1782 að Vallakoti í Reykjadal og var þar í fóstri til þess vorið 1784, að það góða fólk og fátæka dó eins og svo margir aðrir úr því skæða hallæri, er þá yfir gekk. Var ég þá nær kominn dauða, sökum óhollrar fæðu, en faðir minn, sem þá var á næsta bæ, gat þó fyrir guðs hjálp haldið í mér lífinu með litlu af mjólk, hveitibrauði og feitmeti. Vorið 1784 fór ég með föður mínum að Parti í Reykjadal . . . ; en flutti sig 1786 að Daðastöðum í sömu sveit.“ „Þegar ég óx upp, var ég á sumrum við slátt og í ferðalögum, oft einsamall, en á vetrum við fjárhirðingu. Haustið 1794 fór ég að Múla til að læra latínu. Síra Ingjaldur, merkismaður á sinni tíð, kenndi mér þennan og næsta vetur. Kallaði hann mig í næmara lagi, en lét minna af skilningi mínum. Vorið 1795 var ég fermdur. . . . Tók síra Einar Tómasson mig þá til uppfræðingar, og tók ég góðum framförum hjá honum. Þeim góða manni unni ég og ann lífs og liðnum. Hann drukknaði af kænu í Múlavatni sumarið 1800. „Haustið 1796 fór eg í [Hólajskóla og settist fjórði að ofan í neðri bekk, undir kennslu þáverandi conrektors síra Jóns Jónssonar, síðast prests að Grenjaðarstað. Þann vetur lagði ég stund á latínu og æfði mig í að yrkja á latínu. Haustið 1796 var ég efstur í neðra bekk. Vorið 1798 yfirheyrði Sigurður biskup okkur neðribekkinga í rúmi sínu, beiddi fyrir okkur af hrærðu hjarta og andaðist litlu síðar. Haustið 1798 var ég þriðji að ofan í efra bekk og útskrifaðist vorið 1799 með góðum vitnis- burði. Sama vor flutti faðir minn að Reykjahlíð við Mývatn, mér til lítilla fram- fara í lærdómsefnum. Stóðu þá yfir hinir svokölluðu aldamótavetrar, og var þá hér á landi ákaflegur gripafellir, sérstaklega norðan og austan. Veturinn 1800-1801 lá ég með fimm öðrum í átta dægur úti á Austurfjöllum, og kól mig þá sem fleiri á fótum og andliti.“ „Þetta sama vor fór ég að Ljósavatni [er hann var vígður aðstoðarprestur að Þóroddsstað]. Kenndi ég þá latínu á vetrum tveim prestaefnum; það gekk mér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.