Andvari - 01.01.1980, Blaðsíða 112
110
ÚR BRÉFUM SR. JÓNS ÞORSTEINSSONAR
ANDVARI
allvel, því latínan var sú eina lærdómsgrein, er ég gat haldið við mig. í Reykja-
hlíð las ég jafnan latneska rithöfunda, er ég stóð yfir fé. Haustið eftir kvæntist ég
Þuríði Hallgrímsdóttur (á Ljósavatni) Þorlákssonar og Valgerðar Sigurðardóttur.
Vorið 1807 fluttum við að Þóroddsstað og bjuggum þar í tvö ár. Hlaut ég svo
að víkja við þangaðför síra Einars Hjaltasonar frá Mývatni vorið 1809. Hafði ég
þá fengið Húsavíkurprestakall. Þar var ég í sex ár, til 1815. Voru þau flestöll haf-
ísaár, með harðindum og aflaleysi; auk þess að sigling brást sökum stríðsins milli
Dana og Enskra 1807 og þau fáu skip, sem komu, höfðu litlar og fjarska dýrar
vörur. Voru þá almenn bágindi um allt land, og hafði ég miklar áhyggjur og atburði
til framflutnings heimili mínu. 1810 fór ég suður á land og sótti 14 vættir af fiski
síðla sumars; fórum við Eyfirðingaveg suður, en Skagfirðingaveg norður, fengum
stórhríð í Gilhagadal, hvar við lágum um nóttina, en héldum daginn eftir í fönn
og krapaveðri að Silfrastöðum. Vorið 1811 rak í hafísum þrjá hvali í Þistilfirði.
Fór ég þangað með hesta mína, sem fáir þá áræddu. Á hvalfjöru í Sveinungsvík
skoraði síra Stefán á Sauðanesi á mig að hefna sín og glíma við einn brýlugan
hvalskurðarmann og ofláta þar í fjörunm. Ég gaf mig óðar til, en maðurinn hopaði
og vildi eigi reyna til þrautar; hrifsuðumst við dálítið á. Síra Stefáni líkaði þetta
vel. Gerði sá höfðingi greitt fyrir mér að fá hvalinn á hestana og það við vægu
verði. Sama vor um messur fórum við suður Sprengisand, 10-12 manns, til fiski-
kaupa. Var þá gott að kaupa hesta á Suðurlandi, og voru þeir góðu menn þar oss
Norðlendingum vorkunnsamir, sökum þeirra harðinda, er hér gengu. Norður
Sprengisand fórum við 17 saman með 120 hesta í lest. Árið 1812 fór ég suður sama
veg. Lágum við þá viku á Sóleyjarhöfða, því Þjórsá var ófær af vatnsmagni, en alla
þá tíð var mesta blíðviðri og þíðvindi. Þá heppnaðist mér með öðrum manni að
hjálpa fóni sáluga á Mýri og öðrum manni úr lífsháska í Þjórsá.“
„Vor 1814 fór ég síðasta sinn til fiskikaupa suður Skagfirðingaveg, en norður
aftur Eyfirðingaveg. Þá stökk ég ofan í Blöndu að rétta klyfjar á hesti, en hélt
mér við reiðhestinn til lands.“
„Af þeim sex árum, sem ég var á Húsavík, fékk ég tvo vetur liðuga 20 seli
hvort árið; styrktist fjárhagur minn nokkuð við það, og hef ég orsök til þakklát-
lega að lofa guð fyrir, hversu dásamlega hann fleytti mér fram á þessu litla brauði
á þeim miklu bágindaárum, þegar bæði skorti afla og aðsiglingar, og það svo, að
kona mín gat við og við satt aumingja, er þá bjuggu kringum kaupstaðinn."
„Vorið 1815 hafði ég brauðaskipti við síra Helga Benediktsson, þá prest við
Mývatn, og flutti mig með álitlegum gripastofni að Vogum. Þangað kom ég með
fimm börn: Valgerði, Þorstein, Hallgrím, Þorlák og Sigfús. í Vogum átti ég örðugt
uppdráttar, árin hörð, sér í lagi harðindaveturinn 1821-1822. Fækkuðu þá gripir
manna stórum á Norðurlandi. í Vogum fæddust mér þessi börn: Jón, Pétur, Sigur-