Andvari - 01.01.1980, Page 60
58
GILS GUÐMUNDSSON
ANDVARI
Amerískt hvalveiðiskip frá 19. öld. Þessu líkt hefur Reindeer þeirra Roysbræðra verið.
um Behringssund og norður í höf og gerst brautryðjandi um hvalveiðar í nyrsta
hluta Kyrrahafs og í Norðurheimskautshöfum.
Arið 1856 stýrði Roys briggskipinu W. F. Safford frá New York og sigldi
því norður í höf til þess að kanna hvalagengd sem víðast á svæðinu allt vestan
frá Grænlandi og austur að Novaja Semlja, norðan frá Svalbarða og suður til
Islands. I þessum leiðangri prófaði hann hvalabyssu sína, en með hörmulegum
árangri. Hefur Roys lýst því með svofelldum orðum. „Við skutum 22 steypi-
reyðar, drápu eina þeirra, skutum 26 hnúfubaka, drápum fjóra, skuturn fjórar
langreyðar, náðum engri. Hins vegar sáum við, að níu steypireyðar, tólf hnúfu-
bakar og tvær langreyðar blésu blóði, og var það ótvíræð sönnun þess, að skotin
hittu bærilega í mörgum tilvikum og að sprengihylkin sprungu.11
Þegar Roys kom tii baka úr þessum leiðangri, gerði hann endurbætur á
skotvopnum sínurn á grundvelli fenginnar reynslu. Að því búnu hélt hann til
Bretlands í því skyni að prófa þau þar og sækja urn einkaleyfi á framleiðslu
þeirra. Bresk stjórnvöld tóku honum vel og sendu fulltrúa sína með honum í
leiðangur til þess að prófa tækin. Farið var á miðin við Portúgalsstrendur. Það
var í þessari för sem svo óheppilega tókst til, að Roys skaut af sér vinstri
höndina, þar eð hylkið með sprengiefninu sprakk í byssunni um leið og hann