Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1998, Page 66

Andvari - 01.01.1998, Page 66
64 PÁLL VALSSON ANDVARI þær falla í góðan jarðveg með þjóðinni. Hvað á umkomulaust skáld að gera? Á hann að velja Pétur þríhross eða Örn Úlfar og misjafnlega klára tilfinningu sína, svo maður dragi upp heldur ósanngjarna hliðstæðu? Val Sigurðar er auðvelt að gagnrýna, en líka í hæsta máta auðvelt að skilja. Það hefur hins vegar verulegar afleiðingar fyrir hann og ritdómur Jónasar ríður þar baggamuninn. Ef ritdómurinn er lesinn vandlega og greindur frá sjónarhorni Sigurðar Breiðfjörðs, þá leynir sér ekki að Jónas leitast við að koma höggi bæði á Sigurð og Sunnanpóstinn. Dómurinn er gífurlega harðorður, á mörkum velsæmis á vissum pörtum, en einkennist jafnframt af rökfestu og innblásn- um sannfæringarkrafti. Jónas reynir samt að dylja reiði sína en beinir henni inn í stílinn og því blundar hún í orðunum og veldur ásamt öðru sprengi- krafti þeirra. En hann beitir jafnframt lævísum stflbrögðum til þess að koma höggi á óvininn. Til dæmis er athyglisvert að hann nefnir Sigurð Breiðfjörð aldrei á nafn, kallar hann aðeins „manninn“ eða „höfundinn“. Hann beitir þeirri aðferð að forðast návígi við persónu Sigurðar Breið- fjörðs, því auðvitað vissi hann að það nafn hafði vissan töfrahljóm meðal landsmanna í skáldskaparsamhengi. Þetta er lævíst stflbragð, því með þessu eykur hann tilfinningu lesanda fyrir hlutlægni, að Jónas einbeiti sér einung- is að faglegum athugunum á efni og formi rímnanna sjálfra. Að sömu áhrif- um miðar allt tal hans um að hann hafi tekist það leiðindaverk á hendur að lesa þessar einskis nýtu rímur. Það er gert fyrir þjóðina. Jónas stillir hlutun- um þannig upp að hann gangi tregur til leiks, leggi á sig þetta leiðindaverk fyrir land og þjóð og íslenskar bókmenntir. Hann gerir sjálfan sig að eins konar píslarvotti. Af sama tagi er hið niðurlægjandi tal um að þetta sé þjóðarskömm og leirskáldin, þ.e. Sigurður, ættu fremur að sitja heima hjá sér og prjóna meinlausan duggarasokk. Á hinn bóginn má segja að Jónas geri ekki einu sinni tilraun til að breiða yfir árásir sínar á Sunnanpóstinn, þvert á móti notar hann hvert tækifæri til þess að hæða það tímarit. Þannig fléttar hann andstæðinga sína saman, ræðst opinskátt á tímaritið en undir rós að hinni tilteknu persónu, vélar þannig um að högg hans lendir á báðum! Uppbygging ritdómsins er þannig vandlega hugsuð af hálfu Jónasar. Auk stóryrða og áðurnefndra stflbragða notar hann ýmis klassísk mælskubrögð til þess að sýna menntun, vald og yfirburði. Þannig er eftirtektarvert að þegar Jónas hefur fundið efni rímnanna allt til foráttu, ímyndar hann sér þau mótrök manna að ekki sé við rímnaskáldið að sakast; hlutverk þess sé eftir hefðinni einungis að „kveða yfir söguna eins og hún sé“. Allt í lagi, en þá skuli menn ekki „kippa sér upp við það þó aðrir, sem vit hafa á, geti ekki kallað þess konar rímur skáldskap eða þá menn skáld sem hnoða þeim saman.“12 Greinarmunurinn er hér á milli þeirra sem vit hafa á, þ.e.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.