Andvari - 01.01.1998, Side 77
andvari
BERGRISI Á BESSASTÖÐUM?
75
í þessu samhengi getur verið nýtilegt að hafa til hliðsjónar greiningu Jer-
ome J. McGanns á því sem hann nefnir rómantísku hugmyndafræðina í
samnefndu riti. McGann starfar í anda þeirrar fræðastefnu sem nefnd hefur
verið ný söguhyggja (e. new historicism).11 Hann vinnur með nokkuð hefð-
bundna marxíska aðferðafræði og leggur til grundvallar greiningu Marx á
hugmyndafræði sem falsvitund sem sett er fram í Þýsku hugmyndafræð-
inni. Samkvæmt kenningu Marx er um falsvitund að ræða þegar menn eða
stéttir taka ríkjandi hugmyndafræði sem sjálfsögðum hlut án þess að efast
um forsendur hennar. Þessar forsendur verða þá að algildum sannleika eða
sjálfsögðum hlutum sem síðan er beitt til að skýra önnur fyrirbæri veruleik-
ans og menningarinnar.12 McGann sýnir fram á hvernig sú hugmyndafræði
sem rómantísk skáld og heimspekingar unnu með hefur smám saman orðið
að falsvitund, sem breiðst hefur yfir allan skilning okkar á bókmenntum
rómantíkurinnar, og liggur jafnvel gildismati okkar og mati á öðrum bók-
menntum til grundvallar.13
Þeir gagnrýnendur sem mest hafa fjallað um rómantíkina hafa af þessum
sökum ekki haft gagnrýna, sögulega sýn á stefnuna. Með því að gera hug-
myndir rómantísku skáldanna sjálfra, til dæmis um tengsl manns og nátt-
úru, að grunni nútímalegrar greiningar er sköpuð fölsk söguleg samfella frá
einum tíma til annars og gefið í skyn að skynjun okkar á heiminum sé alltaf
söm. Slík gagnrýni er að mati McGanns gagnslaus nema ef til vill sem
heimild um hugarfar þess sem ritar gagnrýnina.
Gegn þessari blindu hugmyndafræðinnar teflir McGann meðvitaðri
sögulegri fjarlægð. Einungis með því að gera okkur grein fyrir þeim grund-
vallarmnn sem er á heimi okkar og rómantíkurinnar getum við öðlast
skilning á henni. Þessi skilningur hefur einnig þýðingu fyrir samtíðina; með
því að skilja menningu og sögu sem er í grundvallaratriðum ólík okkar eig-
in, getum við varpað ljósi á aðstæður okkar, eða þá hugmyndafræði sem
við sjálf erum ofurseld. Það sem gefur rómantískum verkum gildi er með
öðrum orðum ekki að þau tjái einhverskonar algildan, mannlegan sann-
leika hafinn yfir tíma og rúm. Þvert á móti. Það sem gefur þeim gildi, og
flytur þau til okkar um tíma og rúm, er einmitt það að þau eru einstök,
ekki algild: „The locus of what is unique in a poem, so far as criticism is
concerned, is to be found and studied in its ideological structure, that is, in
all those elements of the work which seem most historically particular and
least transcendental,“14 segir McGann. Einmitt vegna þess að ljóð bera öll
merki samtíma síns og þeirrar hugmyndafræði sem þá var ríkjandi færa þau
okkur innsýn í muninn sem er á milli okkar og fortíðarinnar, í því felst gildi
þeirra.15
I ljósi þessarar kenningar McGanns mætti halda því fram að sú túlkun á
þóði Gríms, sem Sigurður Nordal setur fram og Páll Valsson endurtekur,