Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1998, Page 116

Andvari - 01.01.1998, Page 116
114 KRISTJÁN B. JÓNASSON ANDVARI Það er fyrst þegar menn eru orðnir ríkir að þeir verða hættulegir. Þá verður þeim sama af því peningarnir eru ríki þeirra og allt tal um land og menningu og tungu verður ekki annað en óþægilegt kjaftæði. Peningalaus maður á aftur á móti ekkert nema þetta þrennt, jafnvel þótt það sé veðsett (bls. 194-195). Arðbærni framleiðslunnar er því í senn nauðsynleg - „harmsaga“ Einars undirstrikar það - og hættuleg. Sú staðreynd að tæknin er komin í sveitirn- ar - sé miðað við útgáfuár bókarinnar - er undirtónninn í framfararæðu Einars og öllu hans brölti, en brottflutningur hans til borgarinnar sýnir glöggt að í verkinu er stefnt að því að halda tækninni í þéttbýlinu og nátt- úrunni í sveitinni. Land og synir einkennast af vilja til að skipa tækni og náttúru niður á borg og sveit. Hafi Sjötíu og níu af stöðinni verið lýsing á heimi tækninnar, af lífi með tækni og vélum, hverfur Indriði frá þeim vett- vangi til að skrifa um samruna náttúru og sjálfsmyndar í sveitunum fyrir daga tæknivæðingarinnar, fyrst í Landi og sonum með hliðsjón af átökum efnahagslegrar rökvæðingar og tilfinningalegra tengsla við land og sveit, en síðar í Pjófi í Paradís út frá hugmyndinni um Arkadíu, um hjarðsæluland þar sem maðurinn lifir einföldu en hamingjusömu lífi úti á landsbyggðinni. En í Landi og sonum eru nokkur athyglisverð merki um véltækni mitt í sveitasælunni og þessi litlu merki segja mikið um hvernig andstæður borg- ar/sveitar, tækni/náttúru skarast þrátt fyrir allt. Helsta tákn vélvæðingarinn- ar er þjóðvegurinn. Nærvera hans sýnir að ekkert er eins og það var, að nú- tíminn er smám saman að smeygja sér inn í sveitina, því munurinn á sveit og borg felst ekki lengur í aðskilnaði tveggja rýma, tveggja samfélagsgerða, eins og hann gerir í hefðbundnum hjarðskáldskap, heldur hefur hreyfanleg vélin tekið við af borginni sem fulltrúi siðferðislegs uppnáms og vafasamrar forfrömunar og hún er í raun þegar búin að aka yfir sveitina áður en sveita- fólkið fær tækifæri til að átta sig á því.17 Aðskilnaður véltækni og sveitar sem gert er svo mikið úr í ræðu Einars í 11. kafla er í raun alls ekki eins af- gerandi í textanum og þar er látið í veðri vaka. Ólafur hefur nefnilega þennan veg ætíð fyrir augum og veit að upp er runnin „ný öld“ (bls. 64), en hann stillir þessari öld upp gegn „landinu“ og vísar henni um leið frá sér. Annars vegar er hreyfing sem er „landlaus“, hins vegar er landið sem er sakka sjálfsmyndarinnar og því „kyrrstætt“. Ólafur getur ekki miðlað nú- tímavæðingunni, einfaldlega vegna þess að hún talar ekki til hans, hann hefur enga reynslu af henni. „Sjálfur hafði hann aldrei farið í rútu. . .“ (bls. 67), er sagt um hann. „Langholtið og hóllinn voru hans land og þau fjöll, sem hann sá frá þessum árbakka, túninu og bithaganum fyrir ofan Gils- bakka. Og ekkert land gat komið í staðinn fyrir það“ (bls. 67). Sífellt rót og hreyfing gerir einstaklingnum ómögulegt að ná sambandi við „sinn stað í tilverunni“, við það sem býr í náttúrunni næst honum - það sem gerir hann í raun að manni. Þessi hugmynd um að samruni manns og náttúru eigi sér
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.