Andvari - 01.01.1937, Page 25
Andvari
Dr. Vallýr Guðmundsson
21
inn. Hann fylgdist vel með því, sem gerðist á íslandi,
og talaði oft um það. Stundum minntist hann fyrrri daga,
þegar hann stóð í þjóðmálunum, og var hann réttdæm-
ur um mótstöðumenn sína, jafnvel þá, sem höfðu orðið
honum skæðastir, og kunni vel að sjá yfirburði þeirra.
>Hannes drap mig með glæsimennskunni*, sagði dr.
Valtýr við mig. Hann hætti aldrei að hugsa um fram-
farir íslands, og einkum unni hann menningu alþýð-
unnar. Upp á síðkastið varð dr. Valtýr fyrir nokkurri
andúð af löndum sínum, og var hann sakaður um dansk-
ar skoðanir, enda mátti slíkt að sumu leyti til sanns
vegar færa. En ekki verður um það deilt, að æfistarf
Valtýs Guðmundssonar skipar honum framarlega meðal
samtíðarmanna sinna.
Valtýr Guðmundsson andaðist 22. júlí 1928, og hafði
hann þá að mestu legið rúmfastur í hálft annað ár. Lík
hans var flutt til Reykjavíkur, og er hann þar grafinn.
Hann ánafnaði Landsbókasafni íslands bréf sín og ann-
að, sem hann lét eftir sig óprentað.
Björn K. Þórólfsson.