Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1937, Page 30

Andvari - 01.01.1937, Page 30
26 Fiskirannsóknir Andvari störf a8 vetrarlagi, og hefi smám saman sagt frá þeim í skýrslum mínum. Tilgangurinn með þeim hefir einkum verið sá að mæla þorsk og fylgjast með hrygning hans og nokkurra annarra nytjafiska, sjá fæðu þeirra og gera ýmsar fleiri líffræðilegar athuganir, sem tækifæri gafst til, og svo gefa gaum framförum Grindvíkinga í veiðiskap og útgerð. Fyrri vorferðina fór ég undir vertíðarlokin, 1.—11. maí. Var róið þar þessa daga með lóð og beitt síld heimaveiddri þar um vorið, en hún þótti fremur léleg beita (of mögur) og var fiskur fremur tregur, 200—500 á bát, en mest allt vænn þorskur1), í sæmilegum hold- um, sumir vel lifraðir og fáir lifrarlitlir. Flest af hon- um var útgotið, einkum hrygnurnar, en hængar all- margir ógotnir, enda var nú (8.—10. maí), komið að ver- tíðarlokum (11. maí). En eftir þau sést fátt af ógotnum fiski og helzt hængar, magrar eftirlegukindur, jafnvel fram í júlí. En yfirleitt »kveður* fiskurinn fljótt, að lok- inni hrygningu, sem kunnugt er. Af öðrum fiski en þorski var yfirleitt fátt, eins og vant er, enda ekki lagt sig eftir að veiða neitt af honum og hann tæplega hirtur, nema lítið eitt til soðs, hitt fer nú allt í hausaruslið. Af fiski af þessu tæi sá ég einkum ýsu, smáa keilu og tindaskötu (tindabikkju) og svo einstaka stórufsa, smá- löngu, stóra-karfa og skrápkola og hjá einu skipi mik- ið af háfi, hrygnur með stór egg. í gömlum fiskúrgangi sem lá til þurkunar, sá ég allmargt af smásteinbít. Slang- ur af stórum skarkola, smálúðu, 1 þykkvalúru (»sólkola«), litla-karfa og nokkuð af »ruslfiski« þeim, sem áður var talinn. Við bryggjuna í Járngerðarstaðahverfinu var nú eins og endrarnær, síðari árin, mergð af smáufsa (2—3 1) Um aldur hans sjá bls. 29, neðanmáls.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.