Andvari - 01.01.1937, Side 49
Andvari
Fiskirannsóknir
45
bls. 42) og svo smásíld (kópsíld) og síldarseiði (í Horna-
firði og víðar).
Þegar líður á haustið, ber mest á stærri síldinni, sem
er þá orðin allfeit og sum vel feit. Hefir borið mest á
henni í Grindavík (oft hvalir með) í okt.—desbr., bæði
djúpt (stundum kræki á lóðaröngla) og uppi í landstein-
u,n síðustu ár, sjálfsagt fremur vegna þess, að rekneta-
bátar úr Faxaflóa hafa farið þangað og jafnvel lengra
austur (í Herdísarvíkursjó) til veiða, en af því að meira
Se um hana þar en annarsstaðar við S.-ströndina, þar
sem enginn lítur við henni, þótt hún væri, og við Vestm.
hefir hún veiðst (t. d. í miðjum nóv. síðastl.).
Af því, sem hér hefir verið tínt til, má sjá, að síld er
að finna árið um kring við suðurströnd landsins, jafnvel
1 svartasta skammdeginu (desbr. í Grindavíkursjó), en ó-
líka að fjölda, holdum og stærð (aldri), eftir kynsþroska,
faeðu-gnægð o. fl. og mætti eflaust veiða hana miklu
uieira en enn er gert og til góðra nytja, ef markaður
væri nógur og öruggur.
Lítið hefi eg fengið að vita um síldarmagnið úti fyrir
SV-ströndinni norðan Reykjaness á veturna, en eflaust
er eitthvað af henni þar líka, en fáir, sem gefa henni
9aum. En þegar kemur fram í apr.—maí, eða um svip-
að leyti og hún hverfur frá S.-ströndinni, eins og áður
Var sagt, fer hún, fullorðin vorgots- og sumargotssílds,
asamt smærri síld, óþroskaðri, að safnast á Eldeyjar-
bankann, hið breiða grunn N. og V. frá Eldey út að
Suður-Köntum, og N. með þeim, djúpt í Hafna- og
Miðnessjó, til N.-Kanta, í Jökuldjúp og alt N. í kringum
3ökul. Hafa Suðurnesjamenn stundað þar svo mikið síld-
veiðar hin síðari ár (Skýrsla 1917—18, bls. 50), að tölu-
verð þekking hefir fengizt á háttum síldarinnar þar, t. d.
su. að hún fer að sýna sig á þessum slóðum um eða