Andvari - 01.01.1937, Blaðsíða 119
Andvari
Dagsetning Stiklastaðaorustu.
115
fallið á miðvikudag, en ekki tekið eftir hinu, að það sam-
rýmist ekki 29. júlí 1028.
Þannig er það tímaákvæði, sem lætur Stiklastaðaorustu
eiga sér stað mánudaginn 1029 árum og 209 nóttum
eftir Krists burð, og sem heimildin fyrir er nú að nokkru
slötuð, einskonar samnefnari fyrir hinar sundurleitu tíma-
ákvarðanir heimildanna um dauða Olafs konungs, og
sanna þær í sameiningu, að þessi heimild hefir verið til.
f*essi einkennilega dagsetningaraðferð sýnir ennfremur,
að hún hlýtur að vera eldri en svo, að tímatal kirkjunnar
hafi verið búið að fá fulla festu hjá klerkum Norðurlanda;
°3 er vér jafnframt sjáum, að söguritarinn hefir álitið,
að tímaákvæðið hefði hið mesta heimildargildi, getur varla
nokkur vafi á því leikið, að uppruni þess er af sömu
rótum runnið sem skýrslan til kirkjuyfirvaldanna, sem
attu að löggilda ártíð hins heilaga konungs. En hinir
lærðu kirkjuhöfðingjar hafa ekki skilið rétt dagsetning-
una: >1029 vetr og 209 nætr eftir Krists burð«, heldur
sett Olafsmessu á 29. júlí, sem er 210. dagur ársins.
^elji maður aftur á móti frá fæðingardegi Krists, sem
lelja má, að sé 25. desember, en ekki frá 1. janúar árið
I eftir Krists burð, og reikni jafnframt 120 í hverju
hundraði, sem siður var til um Norðurlönd, þá fáum vér,
með því að ganga út frá nefndri dagsetningu, 31. ágúst
1030, og hann var á mánudag. Með þessari skýringu
ma halda hinu forna tímaákvæði, og því hlýtur hún að
vera gersamlega vafalaus.
. ^ ^en norsk-islandske Skjaldedigtning', udg. af F. ]ónsson, Kbh.
1 1|2, ^ ^ P" ^2- 2) Saga Ólafs konungs helga, utg. av O. A.
0 nsen og ]. Helgason, Osló 1930, p. 617. 3) Skjaldedigtning,
s ' PP- 245 og 252. 4) Skjaldedigtning, Ð. I. p. 431—2. 5) Ólafs
helga utg. av O. A. Johnsen og J. Helgason, Kria 1922, p. 85.
> Skjaldedigtning, B. I. p. 301. 7) Sama rit, p. 244-245. s) Ólafs