Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 28
22
Merkisár i sögu Alþingis.
[Skirnir
Skarðinu eystra, og Þorgeir bróðir hans, er bjó í Odda.
Þessir munu allir hafa verið lífs 930.
Fyrir vestan Þjórsá, milli Ölfusár og neðan Hvítár,
munu hafa verið göfgastir menn: Öluer sonur Hcillsteins Atla-
sonar jarls af Gaulum, Þórir Ásason hersis að Selfossi,
Loftur Ormsson í Gaulverjabæ, Önundur bildur í Önundar-
holti, sem er á lífi 930, Þorgrímur kampi í Kampholti,
Ólafur tuennumbrúni á Ólafsvöllum eða Helgi trausti, sonur
hans. í uppsveitum Árnessýslu hafa verið göfgastir menn
Þormóður Skafti i Eystrihrepp, Ketilbjörn á Mosfelli hinn
gamli í Grímsnesi og Teitur sonur hans, faðir Gizurar
hvíta, Eyuindur Þorgrímsson í Ölfusi, afi Skafta lögsögu-
manns, og Grímkell Bjarnarson gullbera að Ölfusvatni í
Grafningi. í höfðingjatali Landnámu um 930 er nefndur
Geir goði. Hann bjó í Úthlíð, sem kunnugt er. Faðir hans
var Ásgeir Úlfsson, en móðir Þorgerður, dóttir Ketilbjarnar
gamla. Er hér auðsjáanlega málum blandað. Geir er ekki
kominn til mannvirðinga 930—940. Hann er alveg sam-
tíðarmaður Gizurar hvíta. Með honum er hann að vígi
Gunnars á Hlíðarenda um 990, eða 50—60 árum seinna en
höfðingjatalið. Þar á móti er faðir hans, Ásgeir Úlfsson,
líklegur til að hafa verið fyrir mönnum í Biskupstungum
um 930. Hann hefir sennilega verið á fyrsta Alþingi.
Þegar kemur í Kjalarnessþing, sem svo var síðar nefnt,
þá er þar göfugastur maður Þorsteinn Ingólfsson Arnar-
sonar landnámsmanns. Hann hefir búið á Arnarhóli eða í
Reykjavík. Þorsteinn var faðir Þorkels mána, er lögsögu-
maður var 970—985. Þorsteinn er einn þeirra manna, sem
uist má telja, að sótt hafi þingið. Hann hefir vafalaust sett
það og helgað, því að það gerðu niðjar hans siðan. Eng-
inn er jafn Iíklegur til þess að hafa haft á hendi forystu
þingsins fyrsta sem Þorsteinn Ingólfsson. Hann var sonur
fyrsta landnámsmannsins og eins hins ágætasta, sjálfur
manna bezt til þingforustu fallinn, því að enginn hefir ver-
ið honum vanari að standa fyrir þingum, þvi að hann hafði
sett þing á Kjalarnesi fyrir nokkru. Önnur gildust ætt í
Gullbringusýslu var ætt Molda-Gnúps. Af sonum hans má