Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 67
Skírnir]
Alþingi árið 955.
61
Mönnum kemur eigi saman um, hvernig skilja beri
orðin: »að hið sjöunda hvert sumar skyldi auka viku«.
Sumir, og þeir eru líklega fleiri, álíta, að orðin eigi að
taka í venjulegum skilningi, og verða þá sex sumur i röð
óaukin, en við hið sjöunda er bætt sumaraukanum. Auk
þess sem þetta er málvenja hér á landi, þá virðist það
eðlilegast, að Þorsteinn surtur hafi hugsað sem svo, að
það væri komin reynsla fyrir því, að i tveim misserum
væri eigi réttar 52 vikur, heldur meira, og þá lægi næst
að reyna, hvort árið ætti eigi að vera einum degi lengra;
■en til þess að viknatal misseristalsins eigi raskaðist, yrði
að bæta þessum umfram dögum við sem heilli viku, þá er
þeir væri orðnir 7 að tölu, en það yrði sjöunda hvert sum-
ar. Það er ósennilegt, að hann hafi athugað göngu sólar
svo gaumgæfilega, að hann hafi getað sagt, að réttara
væri að bæta sumaraukanum við sjötta hvert ár, og með-
nn eigi var ábyggileg athugun, sem úr þessu gæti skorið,
var auðsætt að gera heldur ráð fyrir því, að árið stæði á
heilum dögum heldur en broti úr degi.
En aðrir halda þvi fram, að Ari telji »sjöunda« hvert
sumar á latneska vísu, því að hann var auðvitað latínu-
lærður klerkur. Hefði hann þá meint, að fimm sumur væri
óaukin saman, en sumarauki hið sjötta, sem hann kallaði
hið sjöunda, af því að hann hafði byrjað töluna á því
sumri, sem áður var aukið, svo að sumrin urðu sjö að
báðum sumarauka-árunum meðtöldum. Þótt þetta sé á móti
málvenju hér, sem aðeins telur síðara sumarauka-árið með,
€r það þó í samræmi við niðurlagsorðin: »ef hlaupár
verða 2 á milli þess, er auka skal, þá þarf að auka hið
sjötta«, því að í hlaupárinu eru 2 dagar umfram 52 vikur,
svo að í 2 hlaupárum og 3 almennum árum verða 2X2
+ 3 = 7 dagar umfram og ganga þeir upp á móti auka-
vikunni. Sumaraukinn þyrfti því að koma á fimmta sumri,
«n Ari segir hið sjötta, sem annaðhvort er rangt, eða hann
hefir orðið í latnesku merkingunni. Og hið sjöunda hvert
sumar hjá Ara ætti þá að vera sama sem sjötta hvert
sumar í nútímamáli. Reikningslega kæmi þetta heim, ef