Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 33
Skirnir]
Merkisár í sögu Alþingis.
27
Héðinn, sonur Gils skeiðarnefs, er þar nam land, hafa haft
mestar virðingar um þessar mundir. Héðinn var faðir Hall-
dórs Garpdalsgoða, föður Þorvalds fyrsta manns Guðrúnar
Ósvífursdóttur. í Króksfirði hefir þá búið Herfinnur son
Gils skeiðarnefs. Þessir menn eru liklegir lil þess að hafa
verið á þinginu 930, sumir eða allir. En gildastir menn
vestan Breiðafjarðar voru þá og lengi síðan Reyknesingar.
^ar hafði land numið Úlfur hinn skjálgi, mágur Helga magra.
Hann hefir sjálfsagt verið látinn 930. En Atli hinn rauði,
sonur hans, langafi Þorgils Arasonar á Reykjahólum, sam-
tíðarmanns Grettis, mun þá hafa búið á Reykjahólum, eða
til vil Már sonur hans. Þeir feðgar, annar eða báðir,
hafa verið á Alþingi 930. í Þorskafirði byggði Hallsteinn,
■sonur Þórólfs Mostrarskeggs, faðir Þorsteins surts, er sum-
•arauka fann. Hallsteinn var göfugur maður og var mægð-
or Auði djúpúðgu, átti Ósk dóttur Þorsteins rauðs, sonar
Auðar. Er Hallsteinn sjálfsagt einn stofnenda Alþingis.
Barðaströnd nam Geirleifur, brœðrungur Atla hins rauða.
Geirleifur var afi Gests Oddleifssonar, sem lifði fram yfir
kristnitöku. Geirleifur mun hafa verið lífs um 930 og gæti
hafa verið á þingi þá. Margir í ætt þeirri voru miklir vit-
menn, svo sem Gestur Oddleifsson, sem líka hafði dulgáfu
nokkra, Gellir Bölverksson og Sighvatur Surtsson lögsögu-
menn.
í vestfjörðum höfðu byggt margir gildir menn. En
minni hefir þingsókn verið þaðan en úr hinum nálægari
sveitum. Patreksfjörð nam Þórólfur spörr. Hann kom snemma
landnámsaldar og hefir sennilega verið látinn 930. En þrir
voru synir hans: Nesja-Knúkur, Geirþjófur og Ingólfur.
Verður fátt um þá vitað, en uppi hafa þeir verið um 930.
í Arnarfirði byggði Án rauðfeldur. Hann hefir verið ætt-
stór maður, kominn af Hrafnistumönnum. Sonur hans var
Bjartmar, afi Auðar, konu Gísla Súrssonar. Bjartmar mun
hafa verið uppi 930, og líklegur til að hafa verið einn
þeirra Vestfirðinga, er þingið 930 hafa sótt. í Dýrafirði
hafa verið göfgastir Þorkell hinn auðgi Þórðarson, land-
Aámsmanns i Dýrafirði, og Vésteinn Végeirsson, sem mun