Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 117
Skírnir]
Alþingi árið 1117.
111
prest hinn fróða ríða til þings með lögsögu fyrir sig 1230.
Þetta hlaut að draga til þess, að lögsögumannsstaðan yrði
ekki í augum almennings jafn vegleg og hún hafði verið,
og ekki talið eins mikið undir því komið að halda hverjum
nýtum lögsögumanni sem lengst. Á það bendir það, að þeir
14 menn, er lögsögu höfðu frá 930—1116, voru að meðal-
tali 132,7 ár hver, en þeir 18, sem lögsögu höfðu 1117—
1271, aðeins 8r>/» ár hver. Þá er og líklegt, að áhugi manna
á uppsögn laganna á þingi og þar með lagaþekking þeirra
hafi dofnað, þegar farið var að lesa lögin upp af bók.
Menn hafa þókzt öruggir um, að lögin væri vel geymd á
skránni og tiltæk þar, þegar á þyrfti að halda, hvað sem
þessum sérstaka upplestri liði.
En hafi skrásetning laganna þannig að sumu leyti haft
rniður góð áhrif i bili, þá má leiða sterkar líkur að því, að
hún hafi að öðru leyti verið eitt hið mesta heillaverk, sem
unnið hefir verið fyrir þjóð vora, þvi að með henni hófst
ntóld á Islandi.
Það fór að líkum, að .biskuparnir yrði eigi lengi eftir-
bátar veraldlegra höfðingja um ritun laganna, enda er lík-
!egt, að kristinna laga þáttur þeirra Þorláks og Ketils hafi
verið ritaður skömmu eftir að Ketill biskup kom úr vígslu-
lör sinni til Danmerkur 1122. Hungurvaka segir: »Þorlákr
biskup ruddi til þess á sínum dögum, at þá var settr ok
ritaðr kristinna laga þáttr, eptir hinna vitrustu manna for-
sjá á landinu ok umráðuin Özurar erkibiskups, ok vóru
þeir báðir viðstaddir til forráða, Þorlákr biskup ok Ketill
biskup; ok margt var þat annat, sem þeir settu ok sömdu
á sinum dögum til siðbótar landsmönnum.«
Þó að Hungurvaka telji Þorlák þannig frumkvöðul laga-
ritunarinnar, er það athugandi, að »kristinna laga‘þáttur«
' Konungsbók telur Ketil fyrstan: »Svá settu þeir Ketill
biskup ok Þorlákr biskup, at ráði Özurar erkibiskups]jok
Sæmundar ok margra kennimanna annarra kristinna laga
Þátt, sem nú var tínt ok upp sagt.« Og eins er í 6 öðrum
handritum af 8 Ketill talinn fyrstur. Það er og líklegt, að
Ketill hafi einmitt fengið »ráð« eða »umráð« Özurar erki-