Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 162
156
Alþingi árið 1281.
[Skírnir
það, er síðar segir í sögunni, er talað er um samninga
þeirra biskups og Loðins eftir Alþingi. Þar er þess getið,
að þeim hafi ekki samið um það, »at sá sé lögmaðr yfir
kristnum rétti, sem konungr skipar til«. Þetta ákvæði var
fullkomið brot á kirkjulögunum og á sættargerðinni i Túns-
bergi 1277. Það má telja það víst, að þetta ákvæði hafi
ekki staðið í bókinni í fyrstu. í Þingfararbálki landslaga
Magnúsar konungs, sem er aðalheimild Þingfararbálks Jóns-
bókar, er ekkert slíkt ákvæði að finna. Það er líka mjög
ósennilegt, að Magnús konungur hafi látið setja slíkt ákvæði
í bókina. Hann var of mikill vinur kirkjunnar til þess, og
honum hefði heldur aidrei komið til hugar að ganga svo
freklega á samning þann, er hann hafði gert við kirkjuna
fáum árum fyrr. Hafi slíkt ákvæði því verið í bókinni, þá
hefir því verið bætt inn í hana eftir að Magnús konungur
lézt. Það eru leikmannahöfðingjarnir norsku, sem höfðu
forræði konungssonanna, sem þessu hafa ráðið, og þeir
voru nógu miklir óvinir kirkjuvaldsins til þess að þeim er
trúandi til slíks. Þetta ákvæði er ekki í Jónsbók eins og.
hún er nú. Hafi það verið í frumvarpinu, sem lagt var
fyrir Alþingi 1281, þá hefir það annaðhvort ekki náð sam-
þykki eða það hefir verið felit niður aftur bráðlega eftir
lögtöku bókarinnar, því bæði vantar það í handrit bókar-
innar og ekki er heldur kunnugt um, að slík regla hafi
nokkru sinni verið talin gilda hér á landi eftir 1281. Það
er engin ástæða til að rengja frásögn sögunnar um, að
þetta ákvæði hefir verið í frumvarpinu, sem lá fyrir AÞ
þingi 1281. Að svo hafi verið, styrkist líka að nokkru leyti
af Jónsbók sjálfri. Eins og áður var getið, er Þingfararbálk-
ur landslaga Magnúsar konungs aðalheimild Þingfararbálks
Jónsbókar. Er heimildinni m. a. fylgt um kapítulaskiftingu
allt aftur í 9. kap. Þingfararbálks Jónsbókar. Fyrri hluti 9.
kap. er tekinn úr 9. kap. landslaganna, en seinni hlutinn
úr 10. kap. þeirra. Gæti þetta bent til, að einhver rugling-
ur hefði orðið á þessum ákvæðum. í þessum seinni hluta
kap. eru þessi orð í tveimur handritum af Jónsbók: »Sá
skal lögmaðr vera, sem konungr skipar til, hvárt er hann