Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 68
62
Alþingi árið 955.
[Skírnir
hlaupár er talið með, því að í einu hlaupári og 5 almenn-
um árum eru 7 dagar umfram 6 X 52 vikur og geta geng-
ið upp á móti sumaraukavikunni. Hinsvegar væri það ó-
framkvæmanlegt sem ströng rímregla, því að það ræki
ávallt að því, að hlaupár yrði á öðru og sjötta ári eftir
sumarauka, og ef fimmta sumarið væri aukið um viku, þá
væri aðeins eitt hlaupár á milli; en ef sjötta árið væri
aukið, þá væri tvö hlaupár á milli, og væri hvorttveggja
á móti reglunni. Það gæti verið réttari skilningur á orðum
Ara fróða, að þá ætti að auka fimmta sumarið, ef tvö
hlaupár yrðu á milli, ef sjötta árið væri aukið, og ætti
þá í þessu dæmi, sem nú var tekið, tvímælalaust að auka
fimmta sumarið. En eftir reglunni ætti þá einnig að hafa
sumarauka næst á fimmta sumri, því að tvö hlaupár yrðu
frá því að lagt var við sumar. Með því móti yrði tveir
sumaraukar á tíu árum, en hlaupárin aðeins þrjú, og mun-
aði þar degi. Að vísu mætti þetta til sanns vegar færa
með því að telja eigi fyrra hlaupárið i síðara sinni, af því
að það hefði verið talið áður, og fengist þá út rímregla
rímbókanna, en þá er gengið lengra en orð Ara ná.
Skýringin, að orðin »sjötti« og »sjöundi« hjá Ara merki
sama sem »fimmti« og »sjötti« hjá oss nú á tímum, riður
og í bága við orð hans sjálfs, því að hann talar einnig
um, að sjö ár verði saman jafn löng að hvorutveggja.
Verður varla gengið svo langt að segja, að »sjö« verði
sama sem »sex«, nema um misritun væri að ræða. Orðin
»engu að hinu« get ég eigi heldur í þessu sambandi skilið
öðruvísi, en að hann ætlist til, að hlaupársdagurinn sé ekki
talinn með í árum gamla stíls, og kemur það þá öldungis
heim, að sjö ár án hlaupársdags verði jafn löng sjö árum
í misseristalinu, þá er eitt þeirra hefir sumarauka.
Ég er því þeirrar skoðunar, að ósamræmið í lok grein-
arinnar komi af einhverjum misskilningi, annaðhvort hjá
Ara fróða eða þeim, sem síðar rituðu upp íslendingabók
hans. Mætti hugsa sér, að fallið hefði úr setning á undan
orðunum »en ef hlaupár verða tvö« o. s. frv., og hefði
efni hennar verið, að vegna hlaupársins yrði að auka við