Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 171
Skírnir]
Alþingi árið 1481.
165
hér á landi unz yfir lauk með siðabyltingunni. Áður er þó
rétt að athuga það mál, er í raun réttri olli hneykslinu á
þinginu 1481.
Hrafn lögmaður Brandsson átti jörðina Skriðu í Reykja-
dal og var á þeirri jörðu hálfkirkja, og krafðist Ólafur
biskup þess, að Hrafn gerði honum reikningsskap af kirkjunni
°g að hann hefði þar biskupsgistingu, en lögmaður vildi
hvorugt uppi láta. Sama gerðu og aðrir hálfkirknaeigend-
ur- Sneri Ólafur biskup sér þá til Gauta erkibiskups í Nið-
arósi og bað hann að skerast í leikinn. Kom upp úr því
bréf erkibiskups, dagsett 15. sept. 1478, þar sem hann með
mikilli hógværð telur Norðlinga á að gera reikningsskap af
hálfkirkjum sínum. Benti hann á, að svo væri gert um
gjörvalt erkibiskupsdæmið, svo og í öðrum löndum, og
hka í Skálholtsbiskupsdæmi, enda segði í kristinrétti, að
biskup skyldi kirkjum ráða. Skyldu hálfkirkjueigendur gera
biskupi reikningsskap af þeim að minnsta kosti eitt sinn
um hvers biskups tíð. Vildu Norðlingar ekki fara að orð-
um hans, bað hann þá gera grein fyrir afstöðu sinni.
Það er bersýnilegt á þessu bréfi, að erkibiskup hefir
íeginn viljað liðka málið. En það var annað hægra eins og
u stóð, því að þeim Ólafi biskupi og Hrafni lögmanni bar
meira á rnilli en þetta, og það mál, er snerti lögmann og
hans frændur mjög fast. Svo var mál vaxið, að faðir Hrafns
lögmanns, Brandur Halldórsson, sem átti Barð í Fljótum,
hafði orðið í vanskilum um góz kirkjunnar þar, og höfðu
þeir Hrafn og bræður hans gengizt undir það við móður
sma, að þau systkinin sæju fyrir greiðslu á því, en Ólafur
biskup hafði gengið allhranalega eftir. Það liggur þvi við,
að það færi að vonum, að Hrafn, er biskup 1479 lét birta
honum bréf erkibiskups, neitaði að gera biskupi nokk-
Uru reikning af hálfkirkjunni á Skriðu, eða halda þar
uPpi gistingu fyrir biskup. Hann kvað sig ekkert varða
,Jm, hvað gert væri í Skálholtsbiskupsdæmi, og sagðist
nmndu banna öllum hálfkirkjueigendum í lögmannsdæmi
sinu að sinna kröfu biskups. Varð nú nokkur bið á mál-
inu, unz biskup lét 18 presta dóm dæma það í Viðvík 1