Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 317
Skírnir]
Alþingi árið 1903.
311
völd í Danmörku, er var þar 1885. Með því að lítil líkindi
þóttu til þess, að breyting myndi verða á stjórnarfarinu
þar í bráð, eins og líka kom á daginn, var mörgum þing-
mönnum farið að leiðast þetta þóf. Þess vegna var á þingi
1895 breytt til um aðferðina, samþykkt þingsályktunar-
tillaga í stað frumvarps. í henni voru teknar fram allar
þær aðalkröfur, er voru í fyrri frumvörpunum, þar á meðal
■einkum sú krafa, að sérmálin væru ekki borin upp fyrir
konungi í ríkisráði Dana, og að æðsta stjórn sérmálanna
yrði flutt inn í landið o. s. frv. í ráðgjafabréfi 29. maí 1897
var tillögunni svarað svo, að þessar kröfur yrðu ekki tekn-
ar til greina, því að ekki gæti komið til mála að flytja til
íslands úr aðsetursstað konungs æðstu stjórn sérstöku mál-
anna, og að það væri sama sem að leysa ísland úr ríkis-
sambandinu, væri hætt við það að bera sérmálin upp í
ríkisráðinu.
1897 var orðin sú breyting í Danmörku, að nýr ráð-
gjafi hafði verið skipaður fyrir ísland, en stjórnin var að
öðru leyti hin sama. Dr. Valtýr Guðmundsson, þingmaður
Vestmannaeyinga, hafði fengið vilyrði fyrir þvi hjá þessum
nýja ráðgjafa, að hann myndi geta aðhyllzt nokkrar breyt-
ingar á stjórnarskránni. Lét hann landshöfðingja lýsa yfir
því á Alþingi fyrir sína hönd, að hann gæti fallizt á, að
ráðgjafinn bæri ábyrgð fyrir Alþingi á allri stjórnarathöfn-
inni, og að það yrði lögtekið, að ráðgjafanum væri heimilt
embættisstöðu sinnar vegna að sitja á Alþingi. Hins vegar
var það áskilið, að stjórnin þyrfti ekki að leysa upp Al-
þingi eftir 61. gr. stjórnarskrárinnar, þó að breyting væri gerð
á henni, nema því aðeins, að hún væri hlynnt breyting-
unni. Jafnframt átti stjórnarskrármálið að vera alveg út-
kljáð, ef gengið væri að þessu.
Dr. Valtýr lagði fram frumvarp, er fór fram á þessar
breytingar á stjórnarskránni (Valtýskan). Undir meðferð
málsins í Neðri deild, þar sem það var borið fram, tók
Dr. Valtýr frumvarp sitt aftur, en á einkennilegan hátt var
það líka fellt frá annari umræðu. Meiri hluti nefndarinnar
í málinu kom með nýtt frumvarp, er gekk miklu lengra,