Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 185
Skirnir]
Alþingi árið 1541.
179
þröngvað upp á landsmenn með valdi og hörku, hvort
sem þeir vildu eða ekki.
Ekki dugir að rekja sögu þessa lengra fram en til
þess tíma, er Gizur Einarsson er kjörinn biskup, að ráði
Ögmundar biskups Páissonar, á Alþingi 1539. Var Ög-
mundur þá farinn að heilsu og blindur, en á hinn bóginn
tekið að bóla dálítið á hinum nýja sið hér á landi. Hitt
var þó meira, að Kristján konungur III. hafði þá fyrir nokkr-
um árum komið evangeliskri trú á í Danmörku og sýnt
Það, bæði með aðförum sinum í Noregi og með því að
senda hingað kirkjuskipunina nýju, að honum var full al-
vara með að koma þessum sama sið á hér.
Um uppvöxt Gizurar Einarssonar vitum vér fátt og
ekki einu sinni, hvenær hann er fæddur. Hann hafði verið
sendur utan og verið við nám í Hamborg, líklega nokkuð
lengi.:) Fornar heimildir segja, að Gizur hafi »stúderað i
Wittenberg« * 2), en það mun ekki vera rétt.3) Hafði komið
snurða á þráðinn milli þeirra Ögmundar, en nú var það
úr sögunni, og lét Ögmundur velja hann til biskups. Fór
hann utan og kom aftur með skipun konungs, en ekki
vígslu. Var hann samþykktur af Alþingi sem löglegur bisk-
t) Dr. Jón Helgason hefir getið þess til, að Qizur muni hafa
Urið utan 1526, og sé ártalið i bréfi hans frá Hamborg, DI. IX., nr.
504, misritað 1532 fyrir 1527 (MDXXXII fyrir MDXXVII) (Kristnisaga
IsJands II., 21), og er þetta vel sennilegt. Er nærri óhugsandi, að
Qizur hefði verið sendur til Hamborgar 1531, því að þá var Ham-
ú°rg orðin al-Iútherskur bær fyrir nokkrum árum (sjá C. H. W.
Sihem: Die Einftihrung der Reformation in Hamburg).
2) J. Eg. Biskupaannálar, Safn I., 72.
3) Ásmundur dócent Guðmundsson rannsakaði þetta fyrir mig
s>ðastliðið sumar, er hann var í Þýzkalandi. Rannsakaði hann stúd-
er>taskrár háskólans í Wittenberg á árunum 1526—’33, bæði skrár
Urn reglulega háskólaborgara og þá, sem sóttu kennslu um skemmri
*una. En Gizurar er þar hvergi getið. Með þessu inun tekinn af vafi
lllr> þetta atriði, sem hefir lengi þvælzt fyrir mönnum.
12*