Skírnir - 01.01.1930, Blaðsíða 66
60
Alþingi árið 955.
[Skírnir
seinna. Getur verið, að þetta sé eitt af þvi, er Úlfljótur
breytti frá norskum lögum vegna staðhátta hér, en samt
er öllu líklegra, að hann hafi látið sömu ákvæðin gilda
hér fyrst, en er sumarið færðist lengra fram, þá hefir það
reynzt ótækt að hafa fardaga á sumarmálum. Og úr því
farið var að færa annað, svo sem Alþingi, þar til lengra
var á sumarið liðið, þá er auðvitað, að fardagarnir hafa
einnig verið færðir. Er það skiljanlegt, að sumarkoman og
fardagar hafi orðið viðskila á þenna hátt og þess vegna
urðu misseristölin hér eiginlega tvö; annað misserið byrj-
aði með sumri og eftir því voru vikurnar taldar, en hitt
var fardagaárið eða búskaparárið, sem byrjaði í fardögum.
í sögunum eru mörg dæmi þess, að tvö misseri teljast frá
fardögum til næstu fardaga. Mun þetta hafa verið mál-
venja frá þeim tímum, er fardagar voru á sumarmálmm
Annars var það venjan, að skoða sumarið annað misserið,
en veturinn hitt.
Ef gert er ráð fyrir þvi, að sumar hafi árið 955 kom-
ið þ. 29. (eða 22.) marz, hafa menn varla getað komið til
Alþingis fyrr en ellefu (eða tólf) vikur af sumri. Var þá
orðið skammt til miðsumars og fyrirsjáanleg vandkvæði á
því að flytja Alþingi lengra aftur, því að úr því töldust
vikurnar aftur á bak til vetrar. Auk þess mörg önnur óþæg-
indi við það, að sumar kom svona snemma. Það mun því
vera sönn lýsing hjá Ara fróða, að menn hafi vaknað vet
við það, er Þorsteinn surtur leysti úr þessu vandamáli með
því að leggja til, að vika skyldi lögð við sjöunda hvert
sumar. Mönnum hefir skilizt, að þessi tilhögun var miklu
hagkvæmari en sú, sem áður hafði verið baslað við, því
að eigi mundi þurfa að færa Alþingi lengra aftur né breyta
öðrum tímaákvæðum laganna, ef sumaraukinn væri tekinn
upp. Mönnum hefir þótt tillaga Þorsteins hið mesta snjall-
ræði, en komið þessi lausn málsins á óvart, og því hefir
það orðið að málvenju, að hann hafi fundið sumaraukann,
en það hefði varla verið sagt, ef menn hefði þekkt það
ráð áður, að bæta viku inn í sumarið, er þeim þótti það-
koma of snemma.